Rihanna tekur lagið með kvalara sínum 18. febrúar 2012 07:45 Gæti verið að parið fyrrverandi væri að gefa út lag saman, aðeins þremur árum eftir líkamsárásina umtöluðu.
Talið er að söngvarinn Chris Brown, fyrrverandi kærasti Rihönnu, komi fram í myndbandi hennar á næstunni. Það væri eðlilegt ef Brown hefði ekki gengið illa í skrokk á henni fyrir þremur árum. Annar af upptökustjórum nýs lags Rihönnu, Birthday Cake, hefur látið hafa eftir sér að fljótlega verði gefið út myndband með laginu með mjög umdeildum og óvæntum breytingum. Upplýsingar hafa lekið út um að þessi breyting sé sú að fyrrum kærasti söngkonunnar, og einn umdeildasti maður heims um þessar mundir, Chris Brown komi til með að syngja lagið með henni en sögusagnir af endurupptöku sambands þeirra hafa tröllriðið öllu að undanförnu. Flestir muna eflaust eftir dramatískum endi tæplega árs langs sambands þeirra. Það var að morgni 8.febrúar 2009 þegar parið var í bifreið Brown á leið heim úr fyrirpartýi Clive Davis fyrir Grammy verðlaunahátíðina sem fór fram viku síðar. Brown stöðvaði bílinn utan vegar þegar rifrildi blossaði upp milli parsins vegna SMS skeyta sem hann hafði þá fengið frá annari konu og báru með sér að hann ætti í framhjáhaldi. Þar beitti hann söngkonuna grófu líkamlegu ofbeldi, hótaði henni lífláti, hélt um háls hennar þar til hún missti meðvitund og skildi hana svo eftir lurkum lamin. Þegar lögreglu bar að garði var Brown horfinn á braut og Rihanna svo illa farin að færa þurfti hana á spítala, með bólgur í andliti, sprungna vör, blóðnasir og mikið marin. Þar að auki var hún með bitför á öllum líkamanum, þó aðallega á höndum og fingrum. Rihanna lagði fram kæru á hendur Brown sem var fundinn sekur um líkamsárás og í kjölfarið var sett á hann nálgunarbann. Í júlí það sama ár gaf hann út myndband á netinu þar sem hann sagðist sjá eftir gerðum sínum og bað Rihönnu og alla aðdáendur sína afsökunar á hegðun sinni. Í lok árs 2010 óskaði söngvarinn eftir því að nálgunarbanninu yrði aflétt og þar sem Rihanna mótmælti því ekki varð honum að ósk sinni þann 22.febrúar 2011. Margir vilja meina að sambandið hafi hafist að nýju strax þá, þó Brown hafi verið í sambandi síðustu mánuði. Það er þó greinilegt að eitthvað er í gangi á milli þessara tveggja. Nú er bara að bíða og sjá hvort myndbandið komi til með að ljóstra upp um hvað það sé. tinnaros@frettabladid.is
Mest lesið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Rassaumhirða karla í sókn Lífið Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira