Sport

Ragna: Fáránlega góð tilfinning

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragna Ingólfsdóttir eftir sigurinn í kvöld.
Ragna Ingólfsdóttir eftir sigurinn í kvöld. Mynd/Valli
Ragna Ingólfsdóttir var himinlifandi með sigur sinn á Akvile Stapasaityte frá Litháen í einliðaleik kvenna í badminton á Ólympíuleikunum í kvöld.

Þetta var sögulegur sigur hjá Rögnu og sá fyrsti hjá íslenskri badmintkonu á Ólympíuleikum frá upphafi.

Hún spilaði gríðarlega vel í fyrstu lotu sem hún vann 21-10. Ragna stýrði umferðinni og hraðanum og sú litháíska var fljót að gefa eftir.

Stapusaityte hékk lengur í Rögnu í annarri lotu en varð að lokum að játa sig sigraða, 21-16. Ragna fagnaði gríðarlega í lokin enda biðin eftir þessum sigri löng.

„Tilfinningin er fáránlega góð. Ég hef aldrei leyft mér að vona að ég myndi vinna leik á Ólympíuleikum enda vissi ég að ég myndi aldrei vinna neitt fyrirfram. En í stöðunni 20-16 hugsaði ég með mér að þetta gæti verið að gerast. Svo þegar síðasta stigið kom öskraði ég af gleði," sagði Ragna.

„Ég er búin að æfa síðustu 3-4 ár með það í huga að toppa á leikunum. Ég er 29 ára og í besta formi lífs míns."

Nánar verður rætt við Rögnu í Fréttablaðinu á morgun.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×