Sport

Yao vann fyrsta leikinn í riðli Rögnu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Ragna Ingólfsdóttir ásamt Þormóði Jónssyni í Ólympíuþorpinu.
Ragna Ingólfsdóttir ásamt Þormóði Jónssyni í Ólympíuþorpinu. Mynd/Valli
Jie Yao frá Hollandi lenti ekki í teljandi vandræðum með Akvile Stapusaityte í fyrstu viðureign F-riðils í einliðaleik kvenna í badminton.

Yao hafði betur í tveimur lotum, 21-16 og 21-7. Ragna Ingólfsdóttir keppir í sama riðli og mætir Stapusaityte klukkan 18.42 í kvöld.

Einn kemst áfram úr hverjum riðli og ef Ragna hefur betur gegn hinni litháísku Stapusaityte í kvöld verður leikur hennar og Yao annað kvöld hreinn úrslitaleikur um hvor þeirra kemst áfram í 16-manna úrslitin.

Yao er í 20. sæti heimslistans, Ragna í 81. sæti en Stapusaityte í því 94.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×