Ótrúlegar tilviljanir við lífsbjörg í Laxá 15. mars 2012 07:00 f.v. Einar Óli Fossdal, Sigurður Smári sem lenti í ópappinu, Kári Kárason bjargvætturinn, sem kom fyrstur á vettvang og sonur hans hilmar Þór.
Sigurður S. Garðarsson komst lífs af eftir að bíll hans valt og endaði á hvolfi ofan í Laxá á Ásum. Slökkviliðsmaður sá bílveltuna og kom honum til hjálpar. Faðir hans kom síðar að á sjúkrabíl. Rosalega gott að sjá pabba, segir Sigurður. „Tildrög slyssins eru enn í móðu en ég man eftir því að ég lá á hvolfi í bílnum, fastur í öryggisbeltinu og með höfuðið ofan í vatninu. Ég náði að að koma höfðinu upp úr og öskraði svo á hjálp. Ég var í sjokki út af veltunni og kuldanum í ánni og var eiginlega búinn að gefast upp,“ segir Sigurður Smári Garðarsson, 24 ára Blönduósbúi, sem lenti í bílveltu við Laxá á Ásum í fyrrakvöld. Röð tilviljana varð til þess að Sigurður komst lífs af úr jökulkaldri ánni. Bílinn lenti á ísrönd við árbakkann sem forðaði honum frá því að sökkva ofan í djúpan hyl. Sigurður var að mæta öðrum bíl þegar slysið varð. Svo vildi til að í hinum bílnum var Kári Kárason, framkvæmdastjóri og margreyndur slökkviliðsmaður, með syni sínum. Þeir feðgar stukku strax af stað til að bjarga Sigurði. Annan bíl bar að skömmu síðar. Í honum var slökkviliðsstjórinn á Akureyri sem hóf strax björgunarstörf. Tveir sjúkrabílar frá Blönduósi voru síðan sendir á slysstað en í seinni bílnum var Einar Óli Fossdal, fósturfaðir Sigurðar. „Það liðu bara örfáar sekúndur frá því að ég öskraði á hjálp þar til að Kári reif upp hurðina. Hann hélt undir höfuðið á mér enda var ég orðinn máttvana. Sonur hans náði að opna hurðina en komst ekki að bílbeltinu. Á endanum þurfti að skera mig lausan,“ segir Sigurður. „Síðan kom slökkviliðsmaður og dró mig út úr bílnum og eftir það varð allt mjög ruglingslegt. Ég man þó að þegar þeir voru að bera mig í sjúkrabílinn sá ég pabba og þá áttaði ég mig á því hvað hafði gerst. Það var rosalega gott að sjá hann.“ Einar Óli, fósturfaðir Sigurðar, segir að aðkoman að slysinu hafi verið óhugnanleg. „Maður vonast alla daga til þess að þurfa ekki að koma að svona slysum. Þegar maður býr svo í svona litlu samfélagi er líka alltaf hætta á því að maður þekki þá sem eiga í hlut og það getur verið mjög erfitt – ekki síst þegar börnin manns eiga í hlut. Það er óhætt að segja að æðri máttarvöld hafi hjálpað honum.“ Sigurður Smári slapp ótrúlega vel úr veltunni og var útskrifaður af sjúkrahúsinu á Akureyri í gær. Hann segist vera ótrúlega þakklátur Kára og syni hans fyrir lífsbjörgina. „Kári vissi upp á hár hvað hann var að gera. Hann er þvílíkur nagli,“ segir Sigurður sem ætlar að launa honum greiðann. „Ætli ég gefi honum ekki gott faðmlag og flösku af einhverju eðalvíni.“ kristjan@frettabladid.is
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira