Hæ Gosi heldur áfram 31. janúar 2012 15:00 Baldvin Z segir gamanþáttaröðina Hæ Gosa vera greinlega kærkomna breytingu fyrir landann á þessum tímum en hér handsala hann og Hilmar Björnsson, dagskrástjóri Skjás Eins, samning um þriðju seríuna. „
Við erum rétt að byrja að skrifa og komin með ákveðnar hugmyndir um hvað þriðja serían á að fjalla," segir framleiðandinn Baldvin Z en hann og samstarfsfólk hans hjá Z Films skrifaði á dögunum undir samninga við Skjá Einn um þriðju þáttaröðina af gamanþáttunum Hæ Gosi. Þættirnir um bræðurna Víði og Börk, leikna af Kjartani og Árna Pétri Guðjónssonum, hafa átt góðu gengi að fagna en þeim leikstýrir Arnór Pálmi Arnarsson, sem einnig skrifar handritið ásamt Baldvini Z, Katrínu Björgvinsdóttur og Önnu Svövu Knútsdóttur sem nýverið bættist í hópinn. „Það er mikill liðsstyrkur að fá Önnu Svövu með okkur en við stefnum á að halda í sömu leikarana og sögusviðið verður Akureyri eins og í fyrri seríum," segir Baldvin en ekki margir íslenskir sjónvarpsþættir halda út í þrjár seríur og ber þá helst að nefna Vaktar-seríurnar sem eru þrjár talsins. Um 60 % áskrifenda Skjás Eins horfðu á seríu tvö í haust sem einnig gekk vel á VOD-leigunni og í DVD-sölu. „Þetta hefur gengið framar vonum en ég held að þættirnir séu kærkomnir í allri vitleysunni sem á sér stað í samfélaginu. Þetta er einlæg fjölskyldu saga og ekki bara innantómt grín. Við erum rosalega góður hópur sem stendur að þessu og höfum gaman." Áætlað er að fara í tökur í haust en Baldvin segir að þau ætli að gefa sér góðan tíma í þessa seríu. „Við höfum alltaf verið að vinna þetta á stuttum tíma og ákváðum núna að gefa okkur góðan tíma og gera þetta vel. Þættirnir fara því í sýningu í byrjun árs 2013." -áp
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Rassaumhirða karla í sókn Lífið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira