Fólk kaupir og lætur gera upp gömul tekkhúsgögn 4. mars 2012 15:00 Arnar hefur tekið eftir stóraukinni ásókn í notuð húsgögn eftir 20 ár í bransanum. Fréttablaðið/Stefán
Tekkhúsgögn frá sjöunda áratugnum njóta mikilla vinsælda. Kreppan varð til þess að fólk kaupir mikið af notuðum húsgögnum og lætur gera þau upp hjá bólstrurum Heimili „Það eru rosalega skemmtilegar breytingar í gangi," segir húsgagnasalinn Arnar Laufdal Aðalsteinsson. Notuð húsgögn njóta gríðarlegra vinsælda í dag og þá sérstaklega tekkhúsgögn. Arnar hefur selt notuð húsgögn í 20 ár og rekur í dag verslunina Notað og nýtt í Kópavogi. Hann segir stemninguna hafa gjörbreyst á síðustu árum, fólk vilji fá peninga fyrir það sem það á og að ásóknin í notuð húsgögn hafi stóraukist. „Ég byrjaði í kringum 1990 með verslun sem hét Skeifan - húsgagnamiðlun," segir Arnar. „Ég rak hana í 15 ár og hætti 2007, þá var orðið mjög lítið að gera í þessu. Þá henti fólk þessu gamla drasli og keypti nýtt. Svo byrjaði ég aftur nú í haust og mér finnst landslagið hafa gjörbreyst." Gamalt tekk nýtur mikilla vinsælda, sérstaklega hjá ungu fólki að sögn Arnars. Hann fær tekkið aðallega úr dánarbúum og segir fólk meðvitað um hversu vinsæl húsgögnin eru. „Ég er oft í smá erfiðleikum með að ná fólki niður á jörðina með verðið á þessu. Sumir halda að ef þeir eigi tekkskáp, þá séu þeir orðnir milljónamæringar," segir Arnar í léttum dúr. „En svo er tekk ekki sama og tekk. Þetta gamla danska er til dæmis vinsælla en þetta nýrra sem hefur verið framleitt í Noregi." Það hefur einnig færst í aukana að fólk láti bólstra gömul húsgögn. Hafsteinn Sigurbjarnason í HS bólstrun tekur undir það. „Það hefur aukist. Fólk er farið að spá meira í hvort það sé með vandað upplag af húsgögnum í höndunum og hvort það borgi sig að taka þau í gegn. Yfirleitt með vandaðri og betri húsgögn þá borgar það sig," segir hann. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira