Þriggja ára fangelsi fyrir hrottalega árás í Breiðholti Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. september 2012 13:39 Annar sakborninganna, Daniel Arciszewski, fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Mennirnir sem réðust á mann á sjötugsaldri í Breiðholti í júlí og héldu honum klukkutímum saman á hemili hans og hótuðu honum ofbeldi voru dæmdir í fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Annar þeirra, Daniel Arciszewski, var dæmdur í þriggja ára fangelsi en hinn, Snorri Sturluson, í tveggja ára fangelsi. Mennirnir voru ákærðir fyrir að beita manninn ofbeldi og meiða hann. Þeir neyddu hann líka til að millifæra hundruð þúsunda á bankareikning sinn. Fram kemur í dómnum að ákærðu játuðu báðir fyrir dómi að hafa svipt manninn frelsi og rænt hann. Þeir neituðu báðir að hafa beitt eins miklu ofbeldi og lýst var í ákærunni. Daníel neitaði að hafa beitt byssu, eins og fram hafði komið í ákæru. Hann neitaði líka að hafa beitt staf til að ráðast á manninn með. Snorri sagðist ekki hafa hótað manninum lífláti og líkamsmeiðingum. Þá sagðist hann ekki hafa slegið manninn eða bundið hann niður í stól með límbandi. Snorri sagði jafnframt að þeir hefðu byrjað árásina klukkan fimm um nóttina en ekki klukkan þrjú eins og kom fram í ákærunni. Þrátt fyrir þessa fyrirvara ákærðu við verknaðarlýsingu voru dómari, verjandi og saksóknari sammála um að fram væri komin játning brota. Taldi sækjandi ekki þörf á að leiða vitni. Því miðar dómarinn við játningu ákærðu um verknaðarlýsinguna. Eins og fram hefur komið héldu mennirnir fórnarlambinu þar til klukkan ellefu daginn eftir, þegar vinnufélagar hans fóru að óttast um hann og vitjuðu hans á heimili hans. Auk þessa dóms var Daníel dæmdur fyrir fjölmörg fíkniefna og umferðarlagabrot. Hann var sviptur ökuleyfi ævilangt. Snorri á líka margra ára brotasögu að baki. Mennirnir voru að auki dæmdir til að greiða fórnarlambinu 1.265 þúsund krónur auk vaxta í skaðabætur.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira