Sport

Ásgeir: Ég var ferlega stressaður

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Ásgeir Sigurgeirsson
Ásgeir Sigurgeirsson Mynd/Valli
Ásgeir Sigurgeirsson var vitanlega afar ánægður með árangur dagsins á Ólympíuleikunum en hann hafnaði í fjórtánda sæti í keppni í skotfimi í dag.

Keppt var með loftskammbyssu af tíu metra færi og fékk Ásgeir 580 stig af 600 mögulegum og jafnaði þar með sinn besta árangur á alþjóðlegu móti. Hann var aðeins þremur stigum frá því að komast áfram í átta manna úrslitin.

„Þetta var samkvæmt mínum allra björtustu vonum og ekki annað hægt en að vera ánægður með þetta," sagði Ásgeir. „Auðvitað hefði verið gaman að fara áfram í átta manna úrslit en ég er enn að safna reynslu."

Ásgeiri gekk vel í dag. Hann sýndi stöðugleika og skoraði hátt í hverri umferð. En hann viðurkennir að þetta hefði reynt á taugarnar. „Ég var ferlega stressaður í öllum skotunum. En ég vissi að það væri að ganga vel þannig að ég róaði mig niður og tók eitt skot í einu."

„Það er erfiðara að keppa á Ólympíuleikum en öðrum alþjóðlegum stórmótum. Hér eru miklu fleiri áhorfendur og mun fleiri Íslendingar sem koma bara í þeim tilgangi að sjá mig. Þá gildir bara að skrúfa sig dýpra inn í eigin heim og halda bara áfram."

„Ég er afar sáttur við fjórtánda sætið á Ólympíuleikum gegn atvinnumönnum í greininni. Ég er rétt að byrja og á minnst tíu ár eftir ef ég hef úthald í þetta. Það eru bjartir tímar fram undan."


Tengdar fréttir

Ásgeir: Fórnaði glaður sumarfríinu

Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Skotfimikappinn Ásgeir Sigurgeirsson er næstur í röðinni en hann keppir í loftskammbyssu af 10 m færi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×