Phelps keppir í átta greinum í Lundúnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. júlí 2012 16:45 Nordic Photos / Getty Images
Michael Phelps á möguleika á því að endurtaka afrek sitt frá Ólympíuleikunum í Peking fyrir fjórum árum síðan þegar hann vann gull í átta sundgreinum á einu og sömu leikunum. Bandaríska úrtökumótinu fyrir Ólympíuleikana lauk í gær og á lokadeginum náði Phelps að tryggja sér sigur í 100 m flugsundi á tímanum 51,14 sekúndum - besta tíma ársins í heiminum. Það var hans fjórði sigur á mótinu en hann hafði einnig borið sigur úr býtum í 200 m skriðsundi, 200 m fjórsundi og 200 m flugsundi. Hann varð annar í 400 m fjórsundi sem dugði til að tryggja honum þátttökurétt í greininni auk þess sem hann mun keppa í boðsundssveit Bandaríkjanna í þremur greinum. Phelps hefur alls unnið fjórtán Ólympíugull á ferlinum og verður að teljast líklegt að hann muni bæta í safnið á leikunum í Lundúnum í sumar. Phelps á alls sextán verðlaun frá Ólympíuleikum. Metið er átján en sovéska fimleikakonan Larisa Latynina vann átján verðlaun á sínum ferli, þar af níu gull. Það hefur þó gengið á ýmsu hjá Phelps á síðustu fjórum árum. Hann komst í heimsfréttirnar þegar myndir af honum að neyta kannabis birtust af honum á forsíðu dagblaðsins News of the World árið 2009. Síðan þá hefur hann lagt mikið á sig til að ná fyrra formi og er hann allur að koma til, þó svo að árangurinn í 100 m flugsundinu sé um einni og hálfri sekúndu frá heimsmeti hans í greininni. Missy Franklin varð sigursælasta konan á mótinu en hún mun keppa í sjö greinum á leikunum sem er met hjá bandrískri sundkonu. Gamla metið var sex greinar.
Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Fótbolti Fleiri fréttir Alcaraz í úrslit Wimbledon þriðja árið í röð Tók fjóra daga þegar hún var tíu ára en getur nú unnið fimmta árið í röð Ragnhildur fyrst Íslendinga til að vinna LET Access mót Forest íhugar lögsókn gegn Tottenham Krabbameinslyf felldi fótboltamann á lyfjaprófi Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Fyrst Íslendinga til að skora og leggja upp í sama leik á EM Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka EM í dag: Nóg komið af leiðindum, kveðjustund og Copacabana „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Ísak Snær lánaður til Lyngby Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Wenger á allt annarri skoðun en Klopp United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Skýrsla Arons: Stórum spurningum þarf að svara „Þegar við spilum svona þá uppskerum við yfirleitt“ Sveindís: Maður vinnur ekki leiki nema að skora mörk „Það var köld tuska í andlitið“ Glódís: „Gríðarlega erfitt að sitja með þá tilfinningu eftir mót“ Dagný: Veit ekkert hvað ég er að fara að gera Uppgjörið: Valur - Flora 3-0 | Valsmenn í góðri stöðu Sjá meira