Útrásarvíkingar urðu að blásturshljóðfærum 14. mars 2012 16:00 Örn Alexander Ámundason fékk tækifæri til að sýna verk sitt, Kreppa, á opnun The Armory Show í New York.
Örn Alexander Ámundason, nýútskrifaður listamaður frá Listaháskólanum í Malmö, var með verk á opnun The Armory Show í New York. Sýningin er svonefnd listamessa þar sem gallerí setja upp sýningar í þeim tilgangi að kynna starfsemi sína og selja verk. Í ár var lögð sérstök áhersla á Norræna list og tóku meðal annars listamennirnir Shoplifter, Ragnar Kjartansson og Björk þátt í sýningunni. Verk Arnar Alexanders nefnist Kreppa og er tónverk sem hann samdi árið 2009 og er ætlað þrettán hljóðfærum. „Ég valdi þrettán einstaklinga sem mér þóttu koma sérstaklega við sögu efnahagskreppunnar og gerði hvern einstakling að ákveðnu hljóðfæri. Þannig urðu stjórmálamenn strengir, útrásarvíkarnir urðu að blásturshljóðfærum, bankar og fjölmiðlar urðu lúðrar og mótmælendur urðu slagverkshljóðfæri, sem oft eru nefnd hjarta hljómsveitar. Þannig breytti ég til dæmis rödd Davíðs Oddssonar í selló á meðan rödd Jóns Ásgeirs varð að flautu," útskýrir Örn. Verkið var flutt í tvígang á miðvikudaginn var og voru móttökurnar jákvæðar að sögn Arnar. Fjölmiðlar hafa einnig sýnt verkinu áhuga og skrifuðu Art in America, Artfagcity.com og Artinfo.com umsagnir um verkið. Örn verður í New York fram á fimmtudag og heldur þá aftur til Malmö, þar sem hann er búsettur. Aðspurður segir hann dvölina í New York hafa verið skemmtilega og fræðandi. „Það er áhugavert að sjá hvernig svona stórt batterí er rekið og svo er náttúrulega spennandi að fá tækifæri til að sýna utan Evrópu." -sm
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Fleiri fréttir Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Sjá meira