Karitas fær lofsamlega dóma 17. ágúst 2012 10:59 Sendir frá sér nýja skáldsögu í haust.
Gagnrýnendur í Noregi fara lofsamlegum orðum um skáldsögu Kristínar Marju Baldursdóttur, Karitas án titils, sem kom út í norskri þýðingu fyrir skömmu. Gagnrýnandi Verdens gang gefur bókinni fullt hús stiga, sex af sex mögulegum, og segir bókina kröftuga og litríka frásögn af listamanni sem sé uppfullur af löngun, efa, gleði og togstreitu. Gagnrýnandi Adresseavisen í Þrándheimi tekur í svipaðan streng; hann segir bókina margslungna og sverja sig í ætt við verk á borð við Sölku Völku og Sjálfstætt fólk. Þá segir gagnrýnandi Dagbladet að Karítas án titils búi yfir öllu sem góð saga þurfi að búa yfir. Karitas án titils kom fyrst út árið 2004. Í henni segir frá Karitas Jónsdóttur, sem fæðist á Íslandi í upphafi 20. aldar en flytur til Kaupmannahafnar til að gerast listamaður. Bókin var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir hönd Íslands árið 2006. Ári síðar kom framhaldsbókin Óreiða á striga út. Kristín sendi síðast frá sér skáldsöguna Karlsvagninn 2009 en von er á nýrri bók frá henni fyrir jól.
Mest lesið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Tónlist Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Lífið samstarf Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Flúði land vegna fátæktar og atvinnuleysis Aron Can og Erna keyptu „óvart“ hús Stjörnufans í matarboði Loga Pedro Ormstunga og Óresteia með flestar tilnefningar Stuð í kosningavökum flokkanna „Já, þau eru alvöru“ Sjá meira