Sport

Erfitt hjá Eygló í fjórsundinu | Myndir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Eygló Ósk Gústafsdóttir náði sér því miður ekki á strik í 200 m fjórsundi á Ólympíuleikunum í London í morgun.

Hún hefur nú keppt í tveimur greinum en í 100 m baksundinu í gær var hún rétt við Íslandsmet sitt í greininni. En í morgun var hún tæpum tveimur sekúndum frá metinu sínu í fjórsundinu.

Báðar greinar voru þó bara upphitun fyrir 200 m baksundið sem er hennar aðalgrein. Eru vonir bundnar við að hún geti náð sér vel á strik í henni.

Eygló fær nú tveggja daga hvíld og fær því nægan tíma til að jafna sig á vonbrigðum morgunsins.

Valgarður Gíslason var í Ólympíusundhöllinni í morgun og tók þessar myndir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×