Sport

Kári fékk sér sæti á Hreiðari: "Hann er úr stáli“

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Blaðamaður Vísis reyndi að gera heiðarlega tilraun til að taka alvörugefið viðtal við Kára Kristján Kristjánsson fyrir utan Ólympíuþorpið í Lundúnum í kvöld - en með litlum árangri.

Kári ræddi við okkur fyrir utan Ólympíuþorpið en í kvöld fór fram sérstök móttökuhátíð fyrir íslenska liðið sem fjölmiðlar fengu að sækja.

Þeir Ingimundur Ingimundarson, Hreiðar Levý Guðmundsson og Þormóður Jónsson júdókappi stóðu álengdar á meðan viðtalinu stóð og gerðu sitt allra besta til að koma Kára úr jafnvægi.

Eyjamaðurin sterki stóð þó á sínu og lét ekki fara illa með sig, eins og sést á myndbandinu hér fyrir ofan.

„Mér líst frábærlega á þetta enn sem komið er enda aðbúnaður og aðstæður til fyrirmyndar. Netið er hraðvirkt og maður fær nóg að borða sem er mjög jákvætt," sagði hann.

„Við æfðum og spiluðum í keppnishöllinni og gekk vel. Mér líst vel á höllina."

Hann segir að sálrænn undirbúningur hafi einnig gengið vel. „Menn hafa tekið sér fyrstu dagana til að aðlagast og vera bara klárir í það sem er fram undan. Svo á morgun byrja vídeófundirnir og annað sem fylgir þessu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×