Sport

Íslenska sveitin ekki fullskipuð í kvöld

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Nokkrir af íslensku keppendunum á Ólympíuleikunum í Lundúnum verða fjarri góðu gamni þegar íslenska sveitin gengur inn á Ólympíuleikvanginn í setningarhátíðinni í kvöld.

Keppni hefst í fyrramálið og fjórir Íslendingar munu keppa á leikunum á morgun. Þrjú þeirra - Sarah Blake Bateman, Jakob Jóhann Sveinsson og Ásgeir Sigurgeirsson ætla að hvíla heima fyrir á meðan athöfnin fer fram.

Anton Sveinn McKee ætlar þó að vera viðstaddur, þó svo að hann verði fyrsti íslenski keppandinn á dagskrá á morgun þegar hann mun stinga sér til sunds í 400 m fjórsundi.

Athöfnin hefst klukkan 20.00 í kvöld og standa vonir til að henni verði lokið fyrir miðnætti.

Andri Stefánsson, aðalfararstjóri íslensku sveitarinnar, sagði við Vísi í dag að það væri þó minna álag á keppendunum nú en oft áður, enda Ólympíuþorpið staðsett í göngufæri við Ólympíuleikvanginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×