Sport

Foreldrarnir fá að sjá Hrafnhildi synda í Lundúnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hrafnhildur Lúthersdóttir.
Hrafnhildur Lúthersdóttir. Mynd/Eyþór
Hrafnhildur Lúthersdóttir fékk í dag boð um að keppa í 100 m bringusundi á Ólympíuleikunum í Lundúnum og því ljóst að hún mun synda í þremur greinum á leikunum.

Áður hafði hún tryggt sig inn með boðsundssveit Íslands í 4x100 m fjórsundi kvenna en hún hafði áður fengið boð um að keppa í 200 m bringusundi.

Eins og fram kom í viðtali við Fréttablaðið á mánudaginn höfðu foreldrar Hrafnhildar tryggt sér miða á 100 m bringusundið og glöddust þau því sjálfsagt sérstaklega við tíðindi dagsins.

Eygló Ósk Gústafsdóttir og Sarah Blake Bateman munu synda í þremur einstaklingsgreinum á leikunum auk boðsundið en Eva Hannesardóttir mun eingöngu synda í boðsundinu.

Jakob Jóhann Sveinsson syndir í 100 m bringusundi og Anton Sveinn McKee í 1500 m skriðsundi. Þá eru enn vonir bundnar við að Árni Már Árnason og Ragnheiður Ragnarsdóttir komist inn í sínum greinum en það ætti að koma í ljós á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×