Sló í gegn á Grænlandi 25. janúar 2012 14:00
Vísir frumsýnir hér nýtt sýnishorn úr grænlensku hryllingsmyndinni Skuggarnir í fjöllunum, sem verður frumsýnd í Bíó Paradís á föstudag. Myndin er sú langvinsælasta sem hefur verið sýnd á Grænlandi, af 50 þúsund íbúum landsins borguðu 17 þúsund sig í bíó til að sjá hana. Freyr Líndal Sævarsson er myndatökumaður myndarinnar. „Þetta var þvílíkt ævintýri. Það kom mér á óvart hve margir Grænlendingar eru virkilega hæfileikaríkir án þess að hafa „professional" reynslu," sagði Freyr í viðtali við Fréttablaðið í sumar. Freyr fékk verkefnið, sem er hans fyrsta sem tökumaður, í gegnum stelpu sem var með honum í European Film College í Danmörku. Hann hefur aðra hryllingsmynd á ferilsskránni, Reykjavík Whale Watching Massacre, þar sem hann vann við lýsingu. Skuggarnir í fjöllunum, eða Qaqqat Alanngui, segir frá hópi grænlenskra ungmenna sem fara í útskriftaferð í fjallaskála fjarri mannabyggð. Brátt fara þau að skynja að þau séu ekki ein og byrjar þá barátta uppá líf og dauða. Þetta er önnur grænlenska myndin sem hefur verið gerð þar í landi sem hefur fengið fjármagn til framleiðslu. „Fólk hefur ekki séð svona í grænlenskri menningu," segir hann og á þar við þjóðsagnakenndan blæ myndarinnar og grænlenskt talið í þokkabót. Leikstjóri og handritshöfundur er Malik Kleist. Freyr tók myndina upp á Canon 5D-myndavél og notaðist við náttúrulega lýsingu en kostnaðaráætlun hennar hljóðaði upp á 46 milljónir króna. Allir leikararnir og tökuliðið komu frá Grænlandi nema Freyr.
Mest lesið Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Lífið Ísland fékk stig frá þessum löndum Lífið Voru í sjötta sæti í undankeppninni Lífið Austurríki sigurvegari Eurovision 2025 Lífið Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Lífið Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Lífið Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Lífið Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Lífið Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Lífið Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Lífið Fleiri fréttir Voru í sjötta sæti í undankeppninni Þjóðin tjáir sig: Skipbrot VÆB, söguleg núll stig og meðalgreind heimsálfa Ísland fékk stig frá þessum löndum Austurríki sigurvegari Eurovision 2025 Íslendingar á samfélagsmiðlum: „Við hljótum að vinna þetta?“ Klúróvision í kvöld: „Þetta fer svo fyrir brjóstið á okkur að við förum úr fötunum“ Vaktin: Stórsigur Austurríkis og VÆB fengu 33 stig Ísraelska söngkonan biðlar til Íslendinga á íslensku Krókódíllinn úr Happy Gilmore allur Bjarni Ara í íslensku dómnefndinni Berglind Festival og Jón Geir njóta lífsins á Tenerife Sterkar vísbendingar um að Céline Dion mæti í kvöld Seldu allt sem þau áttu og sigla um heiminn Fréttatía vikunnar: VÆB, lögreglueftirlit og lúxusþota Kranavatn á þúsund krónur en slapp við mína verstu martröð Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Sjá meira