Hansa er Mary Poppins 20. ágúst 2012 09:30 Jóhanna Vigdís Arnardóttir ætlar að svífa um svið Borgarleikhússins sem Mary Poppins. Söngleikurinn verður frumsýndur í lok febrúar en um viðamikla uppsetningu er að ræða. „
Ég er rosalega spennt fyrir hlutverkinu og hlakka mikið til. Það má segja að þetta sé draumahlutverkið,“ segir leik-og söngkonan Jóhanna Vigdís Arnardóttir sem bregður sér í hlutverk barnapíunnar göldróttu Mary Poppins í Borgarleikhúsinu í vetur. Söngleikurinn Mary Poppins fer á fjalir Borgarleikhússins í lok febrúar en um er að ræða viðamikla leikhúsuppsetningu. Jóhanna Vigdís, eða Hansa eins og hún gjarna er kölluð, fékk að vita fyrir nokkru síðan að hún fengi hlutverkið. Það þurfti hins vegar að bíða eftir samþykki frá Disney og Cameron Mackintosh, sem í samvinnu við Borgarleikhúsið setja söngleikinn upp, og lögðu þeir blessun sína yfir leikaravalið í vikunni. „Ég hef sjálf ekki séð söngleikinn en legið yfir honum á Youtube og er byrjuð að æfa mig á lögunum. Mér finnst söngleikurinn skemmtilegri en kvikmyndin en þar er að finna helling af nýjum lögum og mikið lagt upp úr heildarmyndinni þar sem dans-og söngatriðin gefa manni svo sannarlega gæsahúð,“ segir Hansa sem, eins og flestir, er mikill aðdáandi Mary Poppins og á sér sitt uppáhaldsatriði úr söngvamyndinni. „Sótaraatriðið, þegar þeir eru að dansa upp á þaki, er mitt uppáhalds úr myndinni. Þetta verður hörkuvinna en það skemmtilegasta sem ég geri er að syngja og dansa á sviði svo það er bara skemmtilegt.“ Meðal annarra leikara í stórum hlutverkum í söngleiknum eru þau Guðjón Davíð Karlsson, Jóhann Sigurðsson, Margrét Eir, Ester Thalía, Sigrún Edda Björnsdóttir, Theodór Júlíusson, Hallgrímur Ólafsson, Halldór Gylfason og Hanna María Karlsdóttir. Íslenski dansflokkurinn tekur einnig þátt í sýningunni enda leikur dansinn þar stórt hlutverk. Svo verður fjölmennur kór og ellefu manna hljómsveit flytur lifandi tónlist í hverri sýningu. Bergur Ingólfsson leikstýrir, María Ólafsdóttir hannar búninga og Tékkinn Petr Hlousék hannar leikmyndina en einnig koma erlendir aðilar að uppsetningunni. Spurð hvort hún sé nokkuð stressuð yfir því að standa ekki undir væntingum sem ein uppáhaldsbarnapía landans svarar Hansa „Nei, alls ekki. Ég er umvafin svo góðu og hæfileikaríku fólki í sýningunni og við ætlum að gera okkar allra besta.“ alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Sjá meira