Lífið

Dolly jafnast á við Jolene

Dóra Takefusa opnar barinn Dolly í Hafnarstræti 4 í kvöld en fyrir rekur hún Jolene í Kaupmannahöfn. Með henni fyrir utan staðinn er Óli Hjörtur sem hún kallar yfirleitt Óla allstaðar.
Dóra Takefusa opnar barinn Dolly í Hafnarstræti 4 í kvöld en fyrir rekur hún Jolene í Kaupmannahöfn. Með henni fyrir utan staðinn er Óli Hjörtur sem hún kallar yfirleitt Óla allstaðar. Fréttablaðið/GVA
Dóra Takefusa sneri heim frá Kaupmannahöfn fyrir ári og opnar í kvöld barinn Dolly en fyrir rekur hún danska staðinn Jolene.

„Ég er bara að deyja. Manni er haldið í ákveðinni spennitreyju þegar beðið er eftir leyfinu og þegar það dettur inn þá renna gleðitár niður kinnarnar,“ segir Dóra Takefusa. Hún opnar barinn Dolly í Hafnarstræti 4 klukkan níu í kvöld með sólarhrings fyrirvara en vínveitinga- og skemmtanaleyfið fékkst í gær.

Dóra hefur rekið skemmtistaðinn Jolene í Danmörku í fimm ár en flutti til Íslands síðasta sumar. „Það var þó ekki stefnan að koma heim og opna Jolene á Íslandi en svona æxluðust hlutirnir,“ segir hún.

Staðurinn er byggður á sömu hugmynd og Jolene en er ekki nákvæm eftirmynd. „Þær eru ólíkar vinkonurnar þó þær séu báðar óaðfinnanlegar og keppast um sama manninn,“ segir hún og á við söngkonuna brjóstgóðu Dolly Parton og hina fögru Jolene sem er mörgum kunn úr laginu sem Dolly gerði ódauðlegt.

Óli Hjörtur Ólafsson stendur með Dóru að opnun staðarins. „Hann hefur unnið í barbransanum frá lögaldri og ég kalla hann yfirleitt Óla allstaðar því það er ekki manneskja á götunni sem hann þekkir ekki. Svo er hann yndislegur og ég legg upp með vinalegt andrúmsloft á stöðunum mínum,“ segir hún en fas hans er í takt við einkunnarorð Dóru; vinsemd og gleði.

Tónlist og andrúmsloft barsins verður í takt við Jolene og segir hún að hústónlist muni hljóma alla jafna og byrji það á opnuninni í kvöld. „Vonandi mun ég bjóða upp á rosalega heita danska plötusnúða í framtíðinni.“

Dóru líður vel með að vera komin heim þó hún skreppi út að meðaltali fjóra daga í mánuði til að stýra Jolene. „Kaupmannahöfn er ekki stór borg en þar er mikið umhverfisáreiti. Þegar við fjölskyldan komum aftur heim leið okkur eins og við hefðum flutt beint í sumarbústað. Samt bý ég í miðbænum þar sem hjartað slær.“

hallfridur@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.