Eiður Smári fiskaði vítið sem tryggði AEK sæti í riðlakeppninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. ágúst 2011 16:45 Eiður Smári Guðjohnsen. Mynd/Heimasíða AEK
Eiður Smári Guðjohnsen átti stóran þátt í því að gríska liðið AEK Aþena komst í kvöld í riðlakeppni Evrópudeildarinnar eftir 1-1 jafntefli á útivelli í framlengdum seinni leik sínum á móti georgíska liðinu Dinamo Tbilisi. Eiður Smári fiskaði vítaspyrnu og rautt spjald á Levan Kakubava, varnarmann Dinamo Tbilisi, á 110. mínútu leiksins. Brasilíumaðurinn Leonardo skoraði jöfnunarmarkið af öryggi úr vítaspyrnunni og það mark sá til þess að AEK verður pottinum þegar dregið verður í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Alexander Koshkadze kom Dinamo Tbilisi yfir eftir aðeins 55 sekúndna leik og þar með var forskot AEK Aþenu frá því í fyrri leiknum farið fyrir lítið en AEK Aþena vann fyrri leikinn 1-0 með sigurmarki rétt fyrir leikslok. Hvað eftir annað sauð upp úr á milli leikmanna liðanna og löng töf var sem dæmi á leiknum í seinni hálfleik þegar leikmönnum og þjálfurum lenti saman. Það varð síðan allt vitlaust í leikslok. Eiður Smári fékk algjört dauðafæri á 75. mínútu en skallaði boltann yfir markið. Hann var annars áberandi í hættulegustu færum AEK í leiknum. Það varð síðan að framlengja leikinn þar sem að fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og þar var íslenski landsliðsmaðurinn örlagavaldur Georgíumannanna.
Evrópudeild UEFA Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira