Boða verkfall á leikskólum 15. júní 2011 05:00 Haraldur F. Gíslason
Leikskólakennarar hafa samþykkt að boða til verkfalls hinn 22. ágúst ef ekki tekst að ljúka kjarasamningum við sveitarfélögin fyrir þann tíma. Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, segir að mikill samhugur sé í stéttinni, sem sjáist vel í eindreginni niðurstöðu atkvæðagreiðslu félagsmanna. 84,7 prósent félagsmanna tóku þátt í kjörinu og 96 prósent þeirra greiddu atkvæði með verkfallsaðgerðum. „Ég var búinn að finna mikinn kraft í leikskólakennurum undanfarið og þeir sætta sig ekki við sinn hlut lengur," segir Haraldur í samtali við Fréttablaðið og bætir því við að grunnkrafan sé að kjör leikskólakennara verði gerð sambærileg við aðrar stéttir sem þeir miði sig við. „Við höfum verið að dragast aftur úr viðmiðunarstéttum frá árinu 2008 og erum nú á eftir þeim svo talsverðu munar. Við höfðum fengið viðurkennt að sömu laun ættu að gilda fyrir sömu menntun og þannig var það. Svo er hins vegar ekki lengur og við viljum leiðréttingu á okkar kjörum." Haraldur segir að byrjunarlaun leikskólakennara séu nú um 247 þúsund krónur á mánuði, fyrir skatt, sem sé fjarri því að vera boðlegt eftir fimm ára háskólanám til að ljúka mastersgráðu. „Það bara gengur ekki. Við erum bara ekki samkeppnishæf á markaði." Spurður hvort mikið beri á milli aðila í kjaraviðræðunum segir hann að sveitarfélögin hafi hingað til aðeins viljað bjóða leikskólakennurum álíka hækkanir og fengust í nýgerðum samningum á almennum vinnumarkaði. „En það erum við ekki tilbúin að sætta okkur við," segir Haraldur en vill ekki gefa upp hverjar kröfur þeirra séu nákvæmlega. Hann bætir því við að verði kjör leikskólakennara ekki leiðrétt muni það koma niður á sókn í námið. „Sókn í staðnámið hefur verið í sögulegu lágmarki þar sem nú eru níu nemar, þó að enn sé ágæt sókn í fjarnámið. En ef fram fer sem horfir á staðan aðeins eftir að versna." Þó að enn sé drjúgur tími þar til boðað verkfall hefst segist Haraldur vonast til þess að samningar takist fljótlega. „Ég ætla bara að vona að viðsemjendur okkar ætli ekki að reyna að tefja málið. Það væri verulega hallærislegt að reyna þann leik og við sættum okkur ekki við slíkt."thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Alelda bíll á Emstruleið Innlent Skotárás á Times Square Erlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Sjá meira