Þurfa að fjölga starfsfólki mikið 16. maí 2011 05:00 Margir þurfa að sameinast um vinnslu síldar og makríls á Vopnafirði í sumar og haust. mynd/hermann
Undirbúningur fyrir komandi síldar- og makrílvertíðar er í fullum gangi hjá uppsjávarfrystihúsi HB Granda á Vopnafirði og fyrirsjáanleg er mikil fjölgun starfsmanna í sumar og fram eftir hausti. Fastráðnir starfsmenn í frystihúsinu eru að jafnaði um fjörutíu talsins en í sumar munu á annað hundrað manns taka þátt í fiskvinnslunni á staðnum, segir í frétt á vef fyrirtækisins. Þótt ekki hafi verið auglýst eftir starfsfólki til að standa vaktina í sumar og fram eftir hausti hafa nú þegar um 115 umsóknir um störf borist HB Granda á Vopnafirði. Unglingar á Vopnafirði og í nærsveitum fengu í fyrrasumar sumarvinnu í frystihúsinu en þá hafði slík vinna ekki staðið þessum aldurshópi til boða í áratugi. Að sögn Magnúsar Róbertssonar, vinnslustjóra hjá HB Granda, ganga heimamenn fyrir um vinnu og einnig þeir sem fengið geta gistingu hjá vinum og vandamönnum meðan á vertíðinni stendur. Þrátt fyrir það þurfi félagið örugglega að leigja húsnæði á Vopnafirði fyrir um fimmtán til tuttugu manns í sumar og fram á haustið. Stefnt er að því að skip HB Granda fari til veiða á síld og makríl í byrjun júní. - shá
Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Fleiri fréttir Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs Sjá meira