Segir það orðið bráðnauðsynlegt að skipta um ríkisstjórn 17. ágúst 2011 19:30
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir stýrivaxtahækkun Seðlabankans, og segir að efnahagshorfurnar sem birtast í hagspá bankans kalli á kosningar. Bjarni segir vaxtahækkun Seðlabankans illskiljanlega og hefur af henni áhyggjur þar sem hagkerfið sé enn í hægagangi. Hann segist einnig hafa miklar áhyggjur af þeirri mynd sem dregin er upp í hagspá bankans, þar sem gert er ráð fyrir 1,6 prósent hagvexti á næsta ári. Hann vill skapa umhverfi fyrir nýjar fjárfestingar, ljúka skuldaúrvinnslu heimila og fyrirtækja, skapa ró um sjávarútveginn og nýta þá virkjunarkosti sem eru til staðar. „Ég tel að það sé orðið bráðnauðsynlegt að skipta um ríkisstjórn í landinu, helst með kosningum," segir Bjarni. „Það þarf nýja stjórnarstefnu þar sem við getum skapað umhverfi fyrir nýjar fjárfestingar. Verðbólgutölurnar sem birtast í þessari hagspá eru líka mikið áhyggjuefni. Ef þær ná fram að ganga stefnir í mikla óánægju á vinnumarkaði áður en langt um líður. Það eru að hrannast upp teiknin um það að ríkisstjórnarstefnan sem er við lýði í dag sé orðin gjaldþrota. Við getum ekki haldið svona áfram." Aðspurður hvort ekki sé hæpið að kenna ríkisstjórninni um verðbólguna, sem sé rót vaxtahækkunarinnar segir Bjarni „Verðbólgan sem er að mælast í dag er að hluta til komin til vegna erlendra áhrifamátta. Síðan eru það innlendir áhrifaþættir, sem meðal annars má rekja til kjarasamninganna síðan í vor. Ríkisstjórnin hefur átt mikil samskipti við aðila vinnumarkaðarins allt þetta kjörtímabil, og ég vil horfa svo á að þeir hafi sprungið á limminu síðasta vor." „Eftir að beðið eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar í rúm tvö ár sprakk öll þolinmæði á vinnumarkaði sem varð til þess að menn gerðu óraunhæfa samninga um launahækkanir, of miklar miðað við það sem var í kortunum. Ríkisstjórnin fylgdi þessu síðan úr hlaði með því að lofa tuga milljarða útgjaldaauka sem engin innistæða var fyrir. Ástandið í dag er skilgetið afkvæmi ríkisstjórnarstefnunnar sem hér hefur verið við lýði."
Mest lesið Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Innlent Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Innlent „Þetta er búið að ræna okkur innri ró“ Innlent Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Innlent Reiði meðal lögreglumanna Innlent Verður líklega mikið eftir af snjó og klaka Veður Handtóku menn á tvítugsaldri vegna stórfelldrar fölsunar rafrænna skilríkja Innlent Fagnar komu Dags um borð í evrubátinn Innlent Seðlabankinn rýmkar lánþegaskilyrði Innlent Valhöll auglýst til sölu Innlent Fleiri fréttir Valhöll auglýst til sölu Rændur fyrir utan Costco um hábjartan dag Handtóku menn á tvítugsaldri vegna stórfelldrar fölsunar rafrænna skilríkja „Þetta er búið að ræna okkur innri ró“ Reiði meðal lögreglumanna Lögreglan vill ná tali af þessu fólki Lögreglustjóri situr sem fastast og spáin gerir krökkunum grikk Vonast til að geta bjargað föstum hnúfubak í fyrramálið Fagnar komu Dags um borð í evrubátinn Nær öllu innanlandsflugi aflýst Kúgaðist og öskurgrét yfir lýsingum sonarins Seðlabankinn rýmkar lánþegaskilyrði Mannekla hafi mikil áhrif á fangaverði Ástandið verði gjörbreytt í fyrramálið Íhugar ekki stöðu sína Þau sóttu um stöðu forstöðumanns Stafrænnar heilsu Hefði aldrei giskað á uppsagnir á hennar deild Svarar ekki beinum orðum hvort Sigríður Björk njóti trausts Langt í frá að málinu sé lokið Mest ánægja starfsfólks í sveitarfélögum á Suðurlandi Strætó enn á eftir áætlun en opnun hringvegarins í vinnslu Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Ríkislögreglustjóra sagt að endurskoða reksturinn og allt á floti í hlákunni Farþegagjald ólögmætt og höfnin skuldar tugi milljóna Bein útsending: Langvinn einkenni Covid Segja ríkislögreglustjóra þurfa að taka til hjá sér Telur að of mikil saltnotkun geri moksturinn enn erfiðari Hringvegurinn opinn á ný Ökumaður stöðvaður með snjófargan á framrúðunni „Því miður er verklagið þannig“ Sjá meira