Ísland vinsælt í hinsegin ritum 21. september 2011 11:00 Eva María Þórarinsdóttir Lange hjá ferðaskrifstofunni Pink Iceland, ásamt sambýliskonu sinni og meðeiganda, Birnu Hrönn Björnsdóttur. Fréttablaðið/Valli
Viðtal við Evu Maríu og Birnu birtist meðal annars í tímaritinu Curve. Ísland er í sviðsljósinu í öllum helstu alþjóðlegu tímaritum samkynhneigðra um þessar mundir, Divu, Curve og L-MAG meðal annarra. Athygli er vakin á landinu sem hentugum áfangastað fyrir hinsegin ferðafólk sökum góðrar stöðu í réttindabaráttu og höfuðborgin og náttúran hafin upp til skýjanna. „Þetta er auðvitað alveg stórkostleg landkynning, burtséð frá okkar markhópi, sem á án efa eftir að opna ýmsar dyr og skila sér í auknum tekjum til ferðamannaiðnaðarins. Enda sýna rannsóknir að hinsegin fólk ferðast mikið og er reiðbúið að eyða töluverðu," hefur Eva María Þórarinsdóttir Lange hjá ferðaskrifstofunni Pink Iceland að segja um þá athygli sem vakin er á Íslandi í fyrrnefndum miðlum. Hún fullyrðir að aldrei hafi verið fjallað jafn mikið og ítarlega um landið á þessum vettvangi. Segja má að Pink Iceland hafi stuðlað rækilega að þessari athygli þar sem Eva María og sambýliskona hennar og meðeigandi, Birna Hrönn Björnsdóttir, kynntu Ísland sem vænlegan áfangastað á ráðstefnu IGLTA, alþjóðlegra ferðamannasamstaka hinsegin fólks, í Bandaríkjunum fyrr á árinu. Stór hópur fjölmiðlamanna var á staðnum og varð yfir sig hrifinn af því sem Íslendingarnir höfðu til málanna að leggja. „Við fengum ofsalega góð viðbrögð. Fólk fagnaði ákaft þessum möguleika, meðal annars í ljósi þess að samtökin hafa í gegnum tíðina einblínt svolítið á suðrænar slóðir," segir Eva María og getur þess að í kjölfarið hafi ritstjórar og blaðamenn stærstu miðlanna gert sér sérstaka ferð til landsins. „Þeir áttu ekki til orð af hrifningu yfir náttúrunni, litríku borgarlífi og menningu og voru undrandi yfir að heyra hversu hratt réttindabaráttan hefur gengið fyrir sig. Margir ætla að koma aftur að ári á Hinsegin daga." Eva María segir ávinninginn af þessari gríðarlegu umfjöllun þegar farinn að skila sér. „Fyrirspurnum og bókunum hefur snarfjölgað hjá Pink Iceland. Þessi markhópur virðist ekki vera bundinn við sumarið eins og níutíu prósent ferðamanna þannig að við ætlum að lengja þetta klassíska tímabil; bjóða upp á hópferðir til Vestfjarða í vetur í samstarfi við Markaðsstofu Vestfjarða ofan á borgarferðir sem hafa notið vinsælda. Enda er íslensk náttúra og verður alltaf helsta aðdráttaraflið." roald@frettabladid.is
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Fleiri fréttir Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Sjá meira