Ólga í Framsókn vegna Evrópumála 19. ágúst 2011 06:30 Andrés Pétursson
Titringur virðist vera meðal stuðningsmanna umsóknar Íslands að Evrópusambandinu (ESB) í Framsóknarflokknum vegna yfirlýsingar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns flokksins, í gær um að leggja ætti umsóknina til hliðar. Nokkrir foyrstumanna flokksins á höfuðborgarsvæðinu sögðu sig úr honum í gær. Meðal þeirra eru Andrés Pétursson, sem var í þriðja sæti á lista flokksins í Kópavogi í bæjarstjórnarkosningunum í fyrra, Gestur Guðjónsson, stjórnmaður í Framsóknarfélaginu í Reykjavík, og G. Valdimar Valdemarsson, formaður Framsóknarfélags Kópavogs. Í bréfi sem Andrés sendi Fréttablaðinu segir hann skrýtið að yfirgefa flokkinn eftir þrettán ár. Forysta flokksins hafi hins vegar sveigt stefnu hans á braut sem sér hugnist ekki. Að ákveða fyrir fram hvort aðild þjóni hagsmunum Íslendinga sé forsjárhyggja sem eigi hvorki skylt við frjálslyndi né víðsýni, segir Andrés, sem er formaður Evrópusamtakanna. Grein eftir Sigmund Davíð birtist í Morgunblaðinu í gær þar sem hann lagði til að umsóknin að ESB yrði sett til hliðar að sinni. Í Alþingiskosningunum 2009 hafði flokkurinn á stefnuskrá sinni að aðildarviðræður við ESB skyldu hafnar en á flokksþingi í apríl var ályktað að hagsmunum Íslands væri betur borgið utan ESB. Tillaga þess efnis að draga umsóknina til baka var hins vegar felld naumlega. - mþl
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira