Íslenski boltinn

Birna Berg: Að velja íþrótt er eins og að velja á milli barna sinna

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Þetta er bara frábær viðurkenning og ég er mjög ánægð,“ sagði Birna Berg Haraldsdóttir, markvörður ÍBV, en hún var valinn besti markvörður umferð 10-18 í Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu.

„Ég átti ágætis sumar og er virkilega stolt af sjálfum mér. Ég á vonandi eftir að bæta mig þar sem ég einungis 18 ára gömul“.

„Ég var í fínu formi í sumar og get bara ekki beðið eftir næsta tímabili“.

„Ef við höldum öllum mannskap og bætum jafnvel nokkrum leikmönnum við þá á þetta lið alveg að geta stefnt ofar í deildinni“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×