Íslenski boltinn

Atli Viðar: Leikmenn stigu upp þegar við misstum mann af velli

Stefán Árni Pálsson á kaplakrikavelli skrifar
„Frábær 2-0 sigur og enn skemmtilegra þegar ég næ að gera bæði mörkin,“ sagði Atli Viða Björnsson, markaskorari FH , eftir leikinn.

„Fyrri hálfleikurinn var erfiður og hlutirnir gengu ekki alveg upp hjá okkur, en síðan þegar við missum mann af velli þá stíga menn upp, gefa meira af sér og við tökum öll völd á vellinum. Það á ekki að þurfa að missa mann af velli svo við förum að spila alvöru bolta en það hefur verið þannig að undanförnu, en sem betur fer erum við að klára leikina“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×