Íslenski boltinn

Matthías: Það var bara spurning hvenær við myndum skora

Stefán Árni Pálsson á Kaplakrikavelli skrifar
„Þetta byrjaði frekar hægt hjá okkur í kvöld en síðan fórum við að fá fullt af færum,“ sagði Matthías Vilhjálmsson, fyrirliði FH, eftir leikinn í kvöld.

„Þegar við missum mann af velli þá aukum við tempóið og förum að spila í færri snertingum og eftir það var þetta í raun aldrei spurning, markið var alltaf á leiðinni“.

„Við fengum fín færi og ég og Gummi Sævars vorum að tengja vel á hægri kantinum. Um leið og markið kom þá vissi ég að við myndum sigla þessum sigri heim“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×