Fótbolti

Ólafur: Menn tóku vel til í eigin þankagangi

Stefán Árni Pálsson á Kópavogsvelli skrifar
„Ég er stoltur af strákunum, en við settum okkur það markmið að vinna leik í Evrópukeppni á þessu ári og það tókst,“ sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, eftir sigurinn í kvöld.

„Það var annað að sjá til liðsins í kvöld og menn hysjuðu aðeins upp um sig buxurnar. Menn tóku vel til í eigin þankagangi og fóru með gott hugafar út á völlinn".

„Það dundu á okkur ósköpin fyrir fyrri leik liðanna og því hef ég þurft að breyta uppstillingunni á varnarmönnum mínum í undanförnum leikjum, en þetta gekk vel í kvöld. Það hefur algjöran forgang hjá okkur núna að koma liðinu í Evrópukeppni á næsta ári“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×