Íslenski boltinn

Andri: Það var eins og þeir væru einum fleiri

Stefán Árni Pálsson á Vodafonevellinum skrifar
„Það er alltaf svekkjandi að tapa og en meira svekkjandi að tapa á þennan hátt,“ sagði Andri Marteinsson, þjálfari Víkings, eftir leikinn.



„Við vorum einum fleiri megnið af leiknum og með hann í fínu jafnvægi en síðan gerist bara eitthvað síðustu tíu mínúturnar. Þeir eru allt í einu betri á öllum sviðum og það virkaði hreinlega eins og þeir væru einum fleiri, sem er óskiljanlegt".

„Svona gerist ef menn klára ekki sýna vinnu og við buðum bara hættunni heim í kvöld,“ sagði Andri Marteinsson eftir leikinn í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×