Fótbolti

Celtic vann 9-0 í dag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gary Hooper skoraði þrennu í dag.
Gary Hooper skoraði þrennu í dag. Nordic Photos / Getty Images
Skoska úrvalsdeildin er ekki alltaf jöfn og spennandi og það sást greinilega þegar að Celtic tók á móti Aberdeen í dag.

Celtic vann 9-0 sigur í leiknum og komst með sigrinum á topp deildarinnar. Liðið er með 30 stig af 33 mögulegum og hefur aðeins tapað fyrir Rangers á tímabilinu.

Rangers getur aftur komist á toppinn með sigri á St. Mirren á morgun en liðið gerði óvænt jafntefli við Inverness CT um síðustu helgi, 1-1.

Þessi tvö lið eru með gríðarlega yfirburði í deildinni og er Celtic nú með markatöluna 31-8 og Rangers er með 26-9.

Gary Hooper og Anthony Stoke skoruðu báðir þrennu í dag og þeir Joe Ledley og Patrick McCourt eitt mark hvor. Þá var eitt marka liðsins sjálfsmark hjá Aberdeen sem er í níunda sæti deildarinnar með tíu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×