Fótbolti

Drogba nýtti ekki færin og Fílabeinsströndin tapaði fyrir Suður-Kóreu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Didier Drogba.
Didier Drogba. Mynd/AFP
Það gengur ekkert alltof vel hjá Fílabeinsströndinni í undirbúningi liðsins fyrir HM í Suður-Afríku í sumar því auk þess að vera þjálfaralausir þá tapaði liðið 0-2 fyrir Suður-Kóreu í vináttulandsleik í London í dag.

Suður Kórea er í riðli með Nígeríu á HM en Fílabeinsströndin er í riðli með Norður-Kóreu og því var þessi leikur mikilvægur hluti af undirbúningi beggja þjóða fyrir HM.

Didier Drogba, framherji Chelsea, fékk nokkur færi í leiknum en tókst ekki að skora fyrir Fílbeinsströndina en í staðinn skoruðu þeir Lee Dong-gook og Kwak Tae-hwi fyrir Suður-Kóreu. Fílabeinsstrandarliðið var miklu meira með boltann en það gekk illa að skapa sér færi.

Park Ji-sung, leikmaður Manchester United, var fyrirliði Suður-Kóreu manna og í byrjunarliði liðsins voru meðal annars þeir Lee Chung-yong, sem spilar með Bolton og Ki Sung-yong sem leikur með Celtic.

Fílabeinsstrandarmenn ráku þjálfarann Vahid Halihodzic í síðasta mánuði og binda nú vonir til að Guus Hiddink sé tilbúinn að stýra liðinu á HM í sumar. Kouadio Georges stjórnaði liðinu í þessum leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×