Fótbolti

Sven-Göran Eriksson að tala við Fílabeinsstrandarmenn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sven-Göran Eriksson.
Sven-Göran Eriksson. Mynd/Getty Images

Knattspyrnusamband Fílabeinsstrandarinnar er enn að leita sér að þjálfara til þess að stýra liðinu á HM í Suður-Afríku sumar. Bosníumaðurinn Vahid Halilhodzic var rekinn í febrúar eftir slaka frammistöðu liðsins í Afríkukeppninni og margir virtir þjálfarar hafa verið orðaðir við stöðuna.

Þar á meðal er Hollendingurinn Guus Hiddink sem var orðaður við liðið í síðustu viku en nú hafa Fílabeinsstrandarmenn hafið viðræður við Svíann Sven-Göran Eriksson sem samkvæmt fréttatilkynningu frá Knattspyrnusambandi Fílabeinsstrandarinnar sýndi því mikinn áhuga á að stýra liðinu í sumar.

Enska landsliðið fór í átta liða úrslit á þremur stórmótum í röð undir stjórn Sven-Göran Eriksson (HM 2002, EM 2004 og HM 2006) en tapaði í öll skiptin fyrir liðum undir stjórn Luiz Felipe Scolari (Brasilía 2002 og Portúgal 2004 og 2006).

Nú gæti tækifærið verið fyrir Sven-Göran að fara lengra því Scolari verður ekki með lið á HM því hann er þjálfari Bunyodkor í Úsbekistan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×