Draumabyrjun Englendinga breyttist í markvarðarmartröð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júní 2010 20:20 Englendingar fagna hér marki Steven Gerrard. Mynd/AP
England og Bandaríkin gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik sínum í C-riðli á HM í Suður-Afríku í kvöld. Hræðileg mistök markvarðarins Robert Green í lok fyrri hálfleiks kostuðu Englendinga sigurinn. Englendingar fengu algjöra draumabyrjun í leiknum og á HM þegar Steven Gerrard kom þeim yfir eftir aðeins 4 mínútur. Hann fékk þá laglega sendingu frá Emile Heskey og skoraði framhjá Tim Howard í marki bandaríska liðsins. Draumurinn breyttist hinsvegar í martröð fimm mínútum fyrir hálfleik þegar Robert Green missti laust og hættulítið skot Clint Dempsey undir sig og í markið. Hræðileg mistök og þau kostuðu liðið sigurinn. Enska liðið fékk nokkrar ágætar sóknir í seinni hálfleik sem hefði getað skilað þeim sigurmarki en það kom ekki og liðin sættust á jafntefli. Þetta var svo sannarlega ekki kvöld Fabio Capello, þjálfara enska landsliðsins, sem tók þrenns konar áhættur í þessum leik og það má segja að þær allar hafi sprungið framan í hann. Capello setti Robert Green í markið en Green gerði hræðileg mistök. Capello ákvað að nota James Milner þrátt fyrir veikindi og Milner entist bara í 30 mínútur. Þá ákvað hann að taka áhættuna á því að nota Ledley King en þurfti síðan að taka hann útaf í hálfleik og setja Jamie Carragher inn.
HM 2010 í Suður-Afríku Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn Handbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Handbolti Fleiri fréttir Klikaði á Panenka-vítaspyrnu og meiddi sig við það Breska lögreglan gagnrýnir brandara forseta FIFA Inter skoraði sex mörk og náði sex stiga forskoti á toppnum Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Arsenal sagt vera að skoða kaup á Julián Álvarez í sumar Sú launahæsta fær 250 milljónir á ári Seldur ódýrt eftir rifrildi við van Persie Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Gæti farið frá Liverpool til Tottenham Unnu leikinn án þess að skjóta á markið Bretar ósáttir með „ódýran brandara“ Infantino Íslenskir spéfuglar vöktu kátínu Spursara en reittu tvo til reiði Konaté syrgir föður sinn „Hann er sonur minn“ Van Dijk: Sýndi Slot vanvirðingu með þessari spurningu Hákon og félagar léku manni fleiri í klukkutíma en töpuðu samt Sancho tryggði Aston Villa áfram í Evrópudeildinni Alisha Lehmann verður nýr liðsfélagi Hlínar Fimm daga fangelsi fyrir að klæðast Borat skýlu á Meistaradeildarleik Sigurður Bjartur á leið til Spánar? „Lagar lekann í smástund en þetta er ekki Liverpool-leiðin“ Freyr orðinn þreyttur á endalausu slúðri Stjarnan selur Adolf Daða til FH Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu Heimavinnan skilaði marki fyrir Szoboszlai Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Newcastle og Chelsea unnu bæði í Meistaradeildinni í kvöld Lewandowski skoraði fyrir bæði félög í Prag Liverpool með flottan sigur í Frakklandi Sjá meira
Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu