Fótbolti

Fabio Capello: Allt gott nema úrslitin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga.
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga. Mynd/AP
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, var sáttur með frammistöðu sinna manna í 1-1 jafnteflinu á móti Bandaríkjunum í kvöld í fyrsta leik enska landsliðsins á HM í Suður-Afríku.

„Við bjuggum til fjölda færa til þess að skora. Við pressuðum mikið og spiluðum góðan leik. Þeir náðu einu skoti og skoruðu. Við erum í góðum gír sem lið og við munum spila enn betur í næsta leik. Úrslitin eru það eina sem ekki var gott," sagði Fabio Capello við BBC eftir leikinn.

„Stundum klúðra menn dauðafæri í sókninni og stundum gera markmenn mistök. Robert Green spilaði mjög vel í seinni hálfleiknum en mistök eru samt mistök," sagði Capello um mistök Robert Green sem gaf Bandaríkjamönnum jöfnunarmarkið.

„Það var allt jákvætt í þessum leik nema úrslitin. Steven og Frank spiluðu vel og allir leikmenn liðsins spiluðu vel. Við fengum færi og við náum vonandi að nýta þau betur næst," sagði Fabio Capello.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×