Fótbolti

Didier Drogba kosinn besti knattspyrnumaður Afríku

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Didier Drogba.
Didier Drogba. Mynd/AFP
Didier Drogba var í gærkvöldi valinn Knattspyrnumaður Afríku árið 2009. Þetta er í annað skiptið á ferlinum sem þessi öflugi sóknarmaður frá Fílabeinsströndinni hlýtur þessi verðlaun en hann var einnig valinn árið 2006.

Drogba hafði betur í baráttunni við Ganamanninn Michael Essien og Kamerúnann Samuel Eto'o en þessir þrír voru tilnefndir til verðlaunanna sem voru afhent í Accra í Gana í gærkvöldi. Landslið Alsíringa var valið lið ársins í Afríku.

„Ég hef enn sömu ástríðu fyrir fótbolta og áður. Ég er enn hungraður og ég er enn að elta titla," sagði Didier Drogba í þakkaræðunni.

Didier Drogba varð 32 ára gamall á miðvikudaginn en hann hefur þegar skorað 25 mörk fyrir Chelsea á tímabilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×