Fabio Capello: Ég vil meira Hjalti Þór Hreinsson skrifar 25. maí 2010 12:00 Capello horfir á sjúkraþjálfara sinna Gerrard í gær. GettyImages
Fabio Capello var nokkuð ánægður með lærisveina sína eftir 3-1 sigur á Mexíkó. Um vináttulandsleik var að ræða en bæði lið undirbúa sig nú undir HM. Hann hrósaði meðal annars Steven Gerrard en enska liðið þótti ekki sannfærandi í leiknum. Það telst það reyndar sjaldan, en samt sem áður er árangur þess yfirleitt góður. “Gerrard getur spilað á miðjunni með Frank Lampard en við verðum að bíða og sjá hverjir verða í formi,” sagði Capello sem hvíldi nokkra lykilmenn í gær, meðal annars Lampard og John Terry. Capello átti við Gareth Barry sem er meiddur, en hann verður líklega í byrjunarliðinu á HM verði hann heill. “Við breyttum til eftir hálfleikinn og settum Steven á miðjuna, þar sem hann spilaði mjög vel. Hann er mjög góður leikmaður sem getur spilað á miðjunni og fyrir aftan framherjann. Hann gefur okkur mikla möguleika.” “Ég hef ekki áhyggjur af frammistöðunni. Það var mjög mikilvægt að vita hvar við stöndum, andlega og líkamlega eftir langt tímabil. Við höfum tíma núna til að ná liðsandanum upp og sjá hversu mikil gæði eru í liðinu.” “Við erum hættulegir þegar við sækjum hratt, mjög hættulegir. En ég vil ekki bara að við spilum þannig. Ég vil meira,” sagði Capello.
Mest lesið Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni Íslenski boltinn Enginn sá tölvupóstinn frá UEFA Sport Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Enski boltinn Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Enski boltinn Það verða tónleikar í hálfleik á úrslitum HM félagsliða Sport Messi slær enn eitt metið Fótbolti „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Íslenski boltinn Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Enski boltinn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Enski boltinn Konate gæti farið frítt frá Liverpool Sport Fleiri fréttir Í beinni: FH - KA | Fallbaráttuslagur í Kaplakrika Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Lengri heimferð bíður KR-inga og Egill kallar eftir Akraborginni „Við erum klárlega að fara í alvöru slagsmál“ Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Messi slær enn eitt metið Leik lokið: Pólland 3 - 2 Danmörk | Bæði lið í leit að fyrstu stigunum Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Njarðvík slapp með stig frá Húsavík Onana frá næstu vikurnar Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Ánægður með Arnar og er klár í haustið „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Diljá Ýr búin að semja við Brann Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? „Hrædd um að við séum að dragast aftur úr“ Óttar Magnús færir sig um set á Ítalíu Topplið ÍR tapaði þremur mikilvægum stigum Kærkominn endurkomusigur Grindvíkinga Liverpool leggur númerið hans Jota á hilluna að eilífu Segir hitann á HM hættulegan Belgar kveðja EM með sigri Spánn áfram með fullt hús stiga Yfirgefur herbúðir Chelsea tveimur dögum fyrir úrslitaleik Lárus Orri byrjaður að bæta við sig Bræðurnir heiðraðir í fyrsta æfingaleik Liverpool Crystal Palace fær ekki að spila í Evrópudeildinni Sjá meira