Ná heimamenn stigi á HM í sumar? Elvar Geir Magnússon skrifar 5. mars 2010 19:00 Frá stúkunni fyrir leik Suður-Afríku og Namibíu.
Mikil eftirvænting ríkir í Suður-Afríku fyrir HM sem fram fer í landinu í sumar. Heimamenn eru þó alls ekki bjartsýnir fyrir gengi síns liðs og skyldi engan undra. Liðið rétt náði jafntefli við Namibíu í vináttulandsleik í vikunni, aðeins þremur mánuðum fyrir stórmótið. Viðvörunarbjöllur hringja og heimamenn taldir líklegastir til að yfirgefa eigið samkvæmi fyrstir í sumar. Mikil stemning var á vellinum fyrir leikinn gegn Namibíu, þjóð sem situr í 111. sæti á styrkleikalista FIFA. Suður-Afríka lenti undir en náði að jafna 20 mínútum fyrir leikslok. Undirbúningur landsliðsins fyrir mótið hefði varla getað gengið verr. Liðið komst ekki einu sinni í úrslit Afríkumótsins sem fram fór fyrir skömmu. Átta tapaðir leikir af níu gerðu það að verkum að hinn brasilíski Joel Santana var látinn taka pokann sinn. Í stað hans var ráðinn annar Brasilíumaður, Carlos Alberto. Meðal æfingaleikja sem Suður-Afríka hefur spilað fyrir mótið var hér á landi gegn Íslandi á Laugardalsvelli. Veigar Páll Gunnarsson skoraði eina mark leiksins og Ísland hrósaði sigri. Það eru því ekki margar vísbendingar, ef þá nokkur, um að gestgjafarnir í Suður-Afríku muni gera gott mót í sumar. Nú þegar 97 dagar eru í HM.
HM 2010 í Suður-Afríku Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Sjá meira