Þjóðverjar tryggðu sér bronsið í Suður-Afríku Hjalti Þór Hreinsson skrifar 10. júlí 2010 20:12 Þjóðverjar fagna sigurmarkinu frá Khedira. GettyImages
Þjóðverjar eru fyrsta þjóðin til að tryggja sér bronsverðlaun tvö heimsmeistaramót í röð. Þjóðverjar lögðu Úrúgvæ í leiknum sem var að ljúka, 3-2. Leikurinn var frábær skemmtun frá upphafi til enda. Arne Friedrich átti fyrsta færið þegar hann skallaði slánna eftir horn á upphafsmínútunum. Diego Forlán skaut svo framhjá úr aukaspyrnu áður en Þjóðverjar komust yfir. Þetta er í fjórða sæti sem Þjóðverjar vinna bronsið á HM. Þeir voru betri heilt yfir fyrsta hálftímann og Thomas Muller skoraði þegar hann tók frákast eftir skot frá Bastian Schweinsteiger. Markið var hans fimmta í keppninni og þar sem hann hefur sent þrjár stoðsendingar er hann nú skráður sem markahæsti leikmaður mótsins. En Úrúgvæ sótti í sig veðrið og uppskar jöfnunarmark skömmu síðar. Þá missti Schweinsteiger boltann á miðjunni, hann barst fram á Cavani sem kláraði færið vel og jafnaði í 1-1. Luis Suarez, sem baulað var á allan leikinn vegna hendinnar gegn Gana, fékk svo dauðafæri rétt fyrir hálfleikinn en hann skaut framhjá. Staðan 1-1 í hálfleik. Úrúgvæ komst svo yfir í upphafi seinni hálfleiks. Diego Forlán skoraði þá fráværtmark með viðstöðulausu skoti efst í markhornið og Úrúgvæjar komnir yfir. En aðeins fjórum mínútum síðar jafnaði Marcell Jansen með skalla eftir magnaða sendingu frá Jerome Boateng. Þjóðverjar voru betri eftir það og uppskáru mark átta mínútum fyrir leikslok. Sami Khedira skoraði þá með skalla eftir hornspyrnu eftir að Úrúgvæ mistókst að bægja hættunni frá. Leikurinn fjaraði út og Þjóðverjar voru nær því að skora en Úrúgvæ að jafna. Úrúgvæ fékk þó aukaspyrnu í uppbótartíma, rétt fyrir utan vítateig Þjóðverja. Forlán tók hana en spyrna hans fór í þverslánna og yfir. Þjóðverjar eru því handhafar bronsverðlaunanna á HM í Suður-Afríku árið 2010.
HM 2010 í Suður-Afríku Mest lesið Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Róbert hættir hjá HSÍ Handbolti Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Handbolti Enduðu á nærbuxunum og gátu ekki flogið Fótbolti Sjáðu dramatíkina á Anfield: Van Dijk skoraði og Simeone brjálaðist Fótbolti Fékk viljandi rautt og gæti misst af úrslitaleiknum Íslenski boltinn „Þessi viðbrögð eru auðvitað ekki í lagi“ Fótbolti Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Handbolti Erfið endurkoma hjá De Bruyne Fótbolti Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ Körfubolti Fleiri fréttir Slæm byrjun Chelsea skilaði Bayern sigri Langfljótastur í fimmtíu mörkin Markaveislur hjá Frankfurt og Sporting Erfið endurkoma hjá De Bruyne Tvenna Rashford tryggði þrjú stig Amanda spilar í Meistaradeildinni Sluppu með stig eftir stórkostlegt mark og annað óheppilegt Sædís og Arna í Meistaradeild Evrópu Fékk viljandi rautt og gæti misst af úrslitaleiknum Mourinho strax kominn með nýtt starf Messi að framlengja við Inter Miami Enduðu á nærbuxunum og gátu ekki flogið Wildcard hugleiðingar Fantasýn: Haaland inn, Salah út og bíða með Isak Fær nýjan þriggja ára samning þrátt fjögur töp í fyrstu fjórum leikjunum Ísland stendur í stað þrátt fyrir stórsigur Fimm sigurmörk á síðustu sjö mínútunum „Maður spyr sig hvar maður á heppnina inni“ Sjáðu dramatíkina á Anfield: Van Dijk skoraði og Simeone brjálaðist „Svekkjandi að við gefum þeim fjögur mörk“ „Sex til sjö leikmenn haltrandi inni á vellinum“ Mourinho tekur við Benfica „Þessi viðbrögð eru auðvitað ekki í lagi“ Swansea gafst ekki upp og skaut Forest úr leik Tvenna Thuram tryggði Inter sigur og PSG fór létt með Atalanta Uppgjörið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið Slæm byrjun Chelsea skilaði Bayern sigri Fyrirliðinn kom til bjargar og Liverpool fagnaði seint í fimmta sinn John Andrews tekur við KR Cecilía hélt hreinu og Inter komst áfram Klúðruðu víti en sóttu stigið með stórkostlegu skoti Sjá meira