Fótbolti

Ísland mætir Ísrael í æfingaleik ytra

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Marki Heiðars Helgusonar gegn Portúgal fyrr í þessum mánuði fagnað.
Marki Heiðars Helgusonar gegn Portúgal fyrr í þessum mánuði fagnað.

Íslenska landsliðið í knattspyrnu leikur æfingaleik gegn Ísrael þann 17. nóvember næstkomandi en leikið verður í Tel Aviv.

Fram kemur á heimasíðu KSÍ í dag að þetta sé í þriðja sinn sem þessar þjóðir mætast en hinir tveir leikirnir fóru báðir fram árið 1992. Öðrum lauk með sigri Ísraelsmanna en hinum með jafntefli.

Þetta er kærkominn leikur fyrir íslenska landsliðið sem lék síðustu tvo æfingaleiki sína gegn Andorra og Liechtenstein.

Um alþjóðlegan leikdag er að ræða og ætti Ólafur Jóhannesson því að geta stillt upp sínu sterkasta liði í leiknum.

Ísrael er í 56. sæti styrkleikalista og því 54 sætum fyrir ofan Ísland á listanum. Liðið féll reyndar um 20 sæti á milli lista eftir að hafa tapaði fyrir Grikklandi og Króatíu í undankeppni EM 2012 fyrr í þessum mánuði.

Ísrael er í fjórða sæti F-riðils í undankeppninni þar sem Grikkland (8 stig) og Króatía (7 stig) eru efst og enn ósigruð.

Liðið vann 3-1 sigur á Möltu og gerði svo markalaust jafntefli gegn Georgíu á útivelli í fyrstu leikjum sínum í riðlinum og er því með fjögur stig í fjórða sæti og með markatöluna 5-5.

Þekktasti leikmaður Ísrael er Chelsea-maðurinn Yossi Benayoun en hann skoraði til að mynda öll mörkin í 3-1 sigrinum á Möltu. Hann er þó meiddur eins og er og mun ekki spila með gegn Íslandi.

Meðal annarra fastamanna í landsliði Ísrael má nefna Tal Ben Haim (West Ham), Dekel Keinan (Blackpool) og Tamir Cohen (Bolton).

Næsti leikur Íslands í undankeppni EM 2012 verður gegn Kýpur í mars.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×