Bendtner vonast eftir því að verða markakóngur HM í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. maí 2010 23:15 Nicklas Bendtner, leikmaður Arsenal og danska landsliðsins. Mynd/AFP
Nicklas Bendtner, leikmaður Arsenal og danska landsliðsins, ætlar sér að skora mörk fyrir danska landsliðið á HM í Suður-Afríku í sumar. Bendtner er að ná sér góðum af nárameiðslum en segist verða tilbúinn í fyrsta leik. „Ég verð pottþétt með á HM. Ég vona að ég nái að skora mörg mörk og nái að verða markakóngur á HM. Það yrði frábært," sagði Bendtner í viðtali við Dagbladet. Nicklas Bendtner skoraði 6 mörk í 26 leikjum með Arsenal á þessu tímabili en fór oft ansi illa með færin sín. Hann stefnir hærra en að spila fyrir Arsene Wenger hjá Arsenal. „Stærsti draumurinn minn er að spila fyrir risafélögin á Spáni. Ég veit að ég á möguleika á að komast þangað," sagði Bendtner og átti þá við Barcelona eða Real Madrid. „Ég hef ekkert unnið neitt ennþá og hef ekki náð að verða markakóngur. Þegar ég verð búinn að afreka slíkt þá get ég farið að horfa á sjálfan mig í öðru ljósi. Ég vonast til að verða frábær leikmaður og að allir tali um mig sem einn af bestu framherjum heims," sagði Bendtner. Fyrsti leikur Dana á HM er á móti Hollandi 14. júní en Kamerún og Japan eru einnig í þessum riðli.
HM 2010 í Suður-Afríku Mest lesið Fótboltastrákur lést eftir hnéaðgerð Fótbolti Barnsmóðir NBA stjörnu hótaði að láta skera af honum puttana Sport Cristiano Ronaldo sagður fá 143 milljónir í laun á dag Fótbolti „Ef það verður ekki ég þá verður það bara einhver önnur“ Sport Var uppi í áhorfendastúku þegar nafn hans var kallað upp í nýliðavali NBA Körfubolti Byrjar meðferð vegna brjóstakrabbameins Handbolti Færeyingar í undanúrslitin á HM og gætu mætt Dönum í úrslitaleiknum Handbolti Alexander Máni seldur til Midtjylland Íslenski boltinn Real rústaði Salzburg og vann riðilinn Fótbolti Dagskráin: Besta deildin, formúla, golf og pílukast Sport Fleiri fréttir Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Mbappé mættur aftur mun léttari eftir magakveisuna Mikael mættur til Stokkhólms að semja við Djurgården Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Neymar hlustaði á hjartað sitt Bayern gæti þurft að fara svakalega leið að titlinum Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt Búið að breyta reglunni um víti sem grætti Atlético-menn Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Sveinn Aron skoraði í vítakeppninni þegar Sarpsborg fór í undanúrslit Íslendingaliðið stóð í toppliðinu úr deildinni fyrir ofan Luka Modric fer til AC Milan eftir HM félagsliða Lallana leggur skóna á hilluna Ronaldo að semja á ný við Al-Nassr Svekkjandi tap eftir misheppnaða sendingu John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ Barcelona snýr loks aftur á Nývang en ekki að fullu Meidd og mætir Íslandi ekki á EM: „Áfall fyrir Noreg“ Fjalla um stórt tap mótherja Íslands í leynileik við U15-strákalið Lyon mun áfrýja og Crystal Palace í óvissu Pogba fer til Mónakó frekar en Bandaríkjanna eða Sádi-Arabíu Áhugamannaliðið gerði jafntefli og græddi milljón dollara Delap skoraði fyrsta markið og Chelsea komst áfram Átján ára gömul og að verða launahæst í sænsku deildinni Sjá meira