Aftenposten spáir nýju skipbroti íslensku bankanna SB skrifar 19. júlí 2010 15:00 Forsíða Aftenposten. Mynd/Atli Steinn Guðmundsson
Norska blaðið Aftenposten fjallar í dag um myntkörfulán Íslendinga. Fréttin er á forsíðu blaðsins með fyrirsögninni: Íslenskir bankar geta farið á hausinn - aftur. Blaðamaðurinn Atli Steinn Guðmundsson fjallar um skrif Aftenposten á heimasíðu sinni og segist hafa keypt eintak af blaðinu með mjólkurpottinum í búðinni í morgun. Í frétt Aftenposten er rætt við Ólaf Garðarsson og Ágústu Sigrúnu Ágústsdóttur sem eru orðin tæknilega gjaldþrota eftir að hafa tekið myntkörfulán fyrir nýju húsnæði. Haft er eftir Ólafi að Íslendingar hafi forðað sér á harðahlaupum frá verðtryggðum lánum enda hafi bankastarfsmenn stokkið á fólk í verslunarmiðstöðvum landsins og hvatt það eindregið til að skipta yfir í erlend lán. Atli Steinn skrifar: „Hugtakið myntkörfulán (n. valutalån) er útskýrt til hlítar og sérstaklega tekið fram að slík lán hafi fram að kreppu verið útbreidd á Íslandi og í Austur-Evrópu. Alltaf huggulegt að falla í flokk með þeim ágæta heimshluta. Sagt er frá nýlegum dómi Hæstaréttar og því slegið upp sem fyrirsögn greinarinnar á innsíðu að íslenskir myntkörfulánþegar vonist til að fá helming núverandi höfuðstóls lánanna afskrifaðan. Blaðamaður miðar þar við þá forsendu að lánin verði færð niður í upphaflega lánsfjárhæð í íslenskum krónum. Það sem áður var martröð lántakenda er því á góðri leið með að verða nýtt skipbrot bankanna,' skrifar Sunnanå og skýrir það með því að íslenskar lánastofnanir hafi veitt myntkörfulán upp á jafnvirði 45 milljarða norskra króna en sjái nú fram á að þurfa hugsanlega að afskrifa 40 - 60 prósent þeirrar upphæðar. Hann fjallar um gjaldþrot Askar Capital (móðurfélags Avant) í síðustu viku og klykkir út með því í burðargreininni að áhrif dóms Hæstaréttar séu þó í besta falli óljós enn sem komið er og nú fylgist erlendir lánardrottnar íslensku bankanna spenntir með framvindu mála. Að lokum ræðir Sunnanå við Þórólf Matthíasson hagfræðiprófessor og birtir frábæra mynd af honum með risastórt glas af appelsínusafa í forgrunni. Hann hefur það eftir Þórólfi að íslensku bankarnir hafi aftur beðið alvarlegan álitshnekki, einmitt þegar þeir voru komnir á fullt við að vinna traust almennings á ný eftir hrunið (ég hef nú sjálfur ekki orðið mikið var við það meinta átak). Þungamiðjan í málflutningi Þórólfs er að dómur Hæstaréttar sé illskiljanlegur, þar sé því slegið föstu að ólöglegt hafi verið að tengja íslensk lán við gengi erlendra miðla en hins vegar fullkomlega löglegt að veita lán í erlendum gjaldmiðlum beint. Íslenska ríkið hljóti að þurfa að gangsetja nýja bankabjörgunaráætlun verði niðurstaðan sú að afskrifa beri helming myntkörfulána." Lesa má fréttina hér á vef Aftenposten.
Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Sjá meira