Gareth Barry mikilvægasti hlekkur Englands? Hjalti Þór Hreinsson skrifar 27. maí 2010 10:30 Barry haltrar af velli í leik með Manchester City. Þessi meiðsli hrjá hann enn og setja plön Fabio Capello í uppnám. GettyImages
Gareth Barry virðist vera lykillinn að velgengni Englendinga á HM. Hann er að jafna sig eftir meiðsli og alls óvíst er að hann nái að beita sér að fullu í mótinu. Fabio Capello vill nota Barry með Frank Lampard á miðjunni og Steven Gerrard fyrir framan þá, annaðhvort úti til vinstri eða þá rétt fyrir aftan Wayne Rooney. Ef Barry er ekki í standi er komin upp vandræðastaða þar sem enska landsliðið á hreinlega ekki almennilegan miðjumann að því er virðist, til að spila með Lampard. Fullreynt er að láta Lampard og Gerrard spila saman á miðjunni. Kappar eins og Michael Carrick, James Milner og Tom Huddlestone hafa staðið sig svo illa að talað er um að Ledley King þyrfti jafnvel að spila á miðjunni. Raunar er fáránlegt að enska landsliðið sé í jafn miklum vandræðum með að stilla upp liðinu sínu en það virðist ekki eiga nógu marga góða markmenn, miðjumenn eða vinstri kantmenn sem geta spilað sem heild. "Barry er alltaf í liðinu hjá mér. Hann er einn af mikilvægustu leikmönnum okkar," sagði Capello sem tilkynnir endanlegan leikmannahóp sinn á þriðjudaginn. Þá er einnig ekki ljóst hjá Capello hvernig hann nær sem mestu út úr Wayne Rooney. Er það með Gerrard rétt fyrir aftan hann og þá annan mann á vinstri kanti, sem er algjörlega óljóst hver ætti að vera, eða þá með Peter Crouch sem er með ótrúlegt tölfræðiskor fyrir enska landsliðið? Þá eru markmannsmálin óleyst og Capello mun því hafa í nógu að snúast fyrir HM, sem hefst eftir tvær vikur.
Mest lesið Dagur öskraði á einn Svíann í kvöld og blótaði honum Handbolti Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Fótbolti Svona verður leikjadagskrá Íslands í milliriðlinum Handbolti „Höfum séð liðið brotna í sömu aðstæðum“ Handbolti Dómari skoraði í handboltaleik og dæmdi markið síðan gilt Sport Donni þarf líka að fara í aðgerð Handbolti „Ég er bara Króati á morgun“ Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Alfreð þurfti að breyta plönum hratt fyrir stund hefndar Handbolti Mætti ekki í viðtöl eftir tap Sport Fleiri fréttir Freyr orðinn þreyttur á endalausu slúðri Stjarnan selur Adolf Daða til FH Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu Heimavinnan skilaði marki fyrir Szoboszlai Komst ekki í liðið hjá Val en skaut niður City: „Frá Lödubíl yfir í Lamborghini“ Þættir um Manchester United í anda „The Crown“ Newcastle og Chelsea unnu bæði í Meistaradeildinni í kvöld Lewandowski skoraði fyrir bæði félög í Prag Liverpool með flottan sigur í Frakklandi Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Sjálfsmark endaði sigurgönguna og dramatík í Aserbaísjan Leikmenn City endurgreiða stuðningsmönnum Íslensku landsliðskonurnar spila á heimavelli Nottingham Forest Frakkar munu að svo stöddu ekki sniðganga HM vegna Grænlands Telur starf Guardiola í hættu: „Hélt ég myndi aldrei á minni lífsleið segja þetta“ Óttast að Grealish verði lengi frá Feginn Frank fékk sér tvö stór rauðvínsglös Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Tvenna Jesus, óvænt töp, veisla í Madríd og langþráður sigur Lærir inn á nýtt umhverfi: „Ég mun gera mörg mistök“ Xabi Alonso myndi segja nei við öllum núna nema Liverpool Bauð Paul Scholes heim til sín til að ræða málin Real Madrid skoraði sex mörk í Meistaradeildinni Gabriel Jesus stjarna Arsenal í enn einum Meistaradeildarsigrinum City fékk skell í Noregi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn KSÍ staðfestir leik gegn heimilislausa HM-liðinu Leikmaður Liverpool lenti í eltihrelli Vilja sjá þessa stjóra í brúna hjá United Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Sjá meira
Sjáðu mörkin úr Meistaradeildinni: Aukaspyrna Szoboszlai, Lewandowski fyrir bæði lið og Kane klikkaði á þrennu