Ísland mætir Ísrael í æfingaleik ytra Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. október 2010 11:46 Marki Heiðars Helgusonar gegn Portúgal fyrr í þessum mánuði fagnað.
Íslenska landsliðið í knattspyrnu leikur æfingaleik gegn Ísrael þann 17. nóvember næstkomandi en leikið verður í Tel Aviv. Fram kemur á heimasíðu KSÍ í dag að þetta sé í þriðja sinn sem þessar þjóðir mætast en hinir tveir leikirnir fóru báðir fram árið 1992. Öðrum lauk með sigri Ísraelsmanna en hinum með jafntefli. Þetta er kærkominn leikur fyrir íslenska landsliðið sem lék síðustu tvo æfingaleiki sína gegn Andorra og Liechtenstein. Um alþjóðlegan leikdag er að ræða og ætti Ólafur Jóhannesson því að geta stillt upp sínu sterkasta liði í leiknum. Ísrael er í 56. sæti styrkleikalista og því 54 sætum fyrir ofan Ísland á listanum. Liðið féll reyndar um 20 sæti á milli lista eftir að hafa tapaði fyrir Grikklandi og Króatíu í undankeppni EM 2012 fyrr í þessum mánuði. Ísrael er í fjórða sæti F-riðils í undankeppninni þar sem Grikkland (8 stig) og Króatía (7 stig) eru efst og enn ósigruð. Liðið vann 3-1 sigur á Möltu og gerði svo markalaust jafntefli gegn Georgíu á útivelli í fyrstu leikjum sínum í riðlinum og er því með fjögur stig í fjórða sæti og með markatöluna 5-5. Þekktasti leikmaður Ísrael er Chelsea-maðurinn Yossi Benayoun en hann skoraði til að mynda öll mörkin í 3-1 sigrinum á Möltu. Hann er þó meiddur eins og er og mun ekki spila með gegn Íslandi. Meðal annarra fastamanna í landsliði Ísrael má nefna Tal Ben Haim (West Ham), Dekel Keinan (Blackpool) og Tamir Cohen (Bolton). Næsti leikur Íslands í undankeppni EM 2012 verður gegn Kýpur í mars.
Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Enski boltinn Fleiri fréttir Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Sjá meira