Fótbolti

Guus Hiddink búinn að samþykkja að þjálfa Fílabeinsströndina á HM

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guus Hiddink.
Guus Hiddink. Mynd/AFP
Guus Hiddink, fyrrum landsliðsþjálfari Rússa og verðandi landsliðsþjálfari Tyrkja, hefur samþykkt að stýra liði Fílabeinsstrandarinn á HM í Suður-Afríku í sumar samkvæmt frétt hjá hollenskri fréttastofu í morgun.

Hollenska fréttastofan NOS segir að Guus Hiddink muni ráða sig frá 15.maí til 15. júlí en áður en hann getur skrifað undir þarf Hollendingurinn að ganga strax frá starfslokum við rússneska knattspyrnusambandið.

Holland og Suður-Kórea hafa bæði komist í undanúrslit á HM undir stjórn Guus Hiddink og á HM fyrir fjórum árum fór hann með ástralska landsliðið alla leið í sextán liða úrslitin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×