Spila tvo úrslitaleiki í staðinn fyrir einn vegna ótta við ólæti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2010 21:30 Það er heitt á milli stuðningsmanna Feyenoord og Ajax. Mynd/AFP
Hollenska knattspyrnusambandið hefur ákveðið að úrslitaleikurinn í hollensku bikarkeppninni verði gerður að tveimur bikarúrslitaleikjum og að liðin spili heima og heiman líkt og gengur og gerist í Evrópukeppnunum. Erkifjendurnir Feyenoord og Ajax eru komin í bikarúrslitin og það varð niðurstaðan á fundi hollenska sambandsins, félaganna og yfirvalda í Amsterdam og Rotterdam að best væri að spila á heimavelli hvors liðs til þess að minnka hættuna á ólátum milli stuðningsmanna. Fyrri leikurinn fer fram í Amsterdam 25. apríl en sá seinni verður spilaður í Rotterdam 6. maí. Bikarúrslitaleikurinn hefur farið fram á heimavelli Feyenoord í Rotterdam allar götur síðan 1989. Yfirvöld í Rotterdam ætluðu fyrst að hleypa tíu þúsunds stuðningsmönnum frá hvoru liði inn á úrslitaleikinn en völlurinn tekur 48 þúsund manns. Fljótlega bárust þó fréttir af því að stuðningsmenn beggja liða væru búnir að redda sér miðum inn á hlutlausa svæðið á vellinum sem voru það slæmar fréttir að ákveðið var að breyta bikarúrslitaleiknum í tvo leiki spilaða heima og að heiman. Fyrir tveimur árum ákváðu borgaryfirvöld í Amsterdam og Rotterdam að engir stuðningsmenn gestaliðanna mættu koma á innbyrðisleiki Feyenoord og Ajax næstu fimm árin eftir að stuðningsmenn félaganna höfðu ítrekað lent saman. Það verður einnig svo í þessum tveimur úrslitaleikjum og því mega stuðningsmenn Feyenoord ekki mæta á fyrri leikinn og stuðningsmenn Ajax mega ekki láta sjá sig á seinni leiknum.
Fótbolti Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Fleiri fréttir Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Sjá meira