Ryan Babel: Þetta var heimskulegt hjá mér Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. apríl 2010 13:00 Ryan Babel fær hér að líta rauða spjaldið í gær. Mynd/AFP
Ryan Babel, leikmaður Liverpool, fékk að líta rauða spjaldið strax á 30. mínútu þegar Liverpool-liðið tapaði 1-2 á útivelli á móti Benfica í Evrópudeildinni í gær. Babel setti þá höndina í andlit Luisao eftir að þessi stóri og mikli varnarmaður Benfica hafði sparkað niður Fernando Torres á ruddalegan hátt. „Dómarinn sagði mér að ég hafi fengið rauða spjaldið fyrir að snerta andlit Luisao. Það var alveg ljóst að þetta var skelfilegt brot hjá Luisao og ég ætlaði mér bara að koma til varnar Fernando," sagði Ryan Babel. „Þegar upp er staðið þá var þetta heimskuleg hegðun hjá mér og algjör vitleysa að vera að snerta andlit hans. Ég tel samt að gula spjaldið hafi verið sanngjarnt en svona eru víst reglurnar," sagði Babel. „Hann kom ógnandi í átt að mér, öskraði og fór alveg upp að mér. Ég reyndi bara að ýta honum frá mér til að koma þeim skilaboðum til hans að halda sér aðeins fjarri," sagði Babel. „Þetta voru mistök hjá mér, ég mun læra af þessu og þetta kemur aldrei fyrir aftur," sagði Ryan Babel að lokum. Þetta gæti hinsvegar kostað Liverpool sæti í undanúrslitunum því liðið var 1-0 yfir þegar Babel var rekinn útaf en tapaði leiknum 2-1.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Íslenski boltinn „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Fleiri fréttir Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Sjá meira