Fótbolti

Gríðarlegur metnaður og miljarðaframkvæmdir í Qatar sem vill HM 2022

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Einn af leikvöngunum sem yrðu byggðir fyrir HM 2022.
Einn af leikvöngunum sem yrðu byggðir fyrir HM 2022. GettyImages
Qatar á líklega metnaðarfyllsta boðið um að halda HM árið 2022. Gríðarlegum fjármunum yrði eytt í að gera mótið hið glæsilegasta ef svo ólíklega vildi til að FIFA hefði áhuga á því.

Hitinn í júní fer í 50 gráður en þá fer mótið einmitt fram. Ógerningur er að spila knattspyrnu á heimsmælikvarða í þeim hita.

Bannað er að drekka áfengi á almannafæri, barir eru faldir inni á fimm stjörnu hótelum til að verda múslimstrúnna sem ræður ríkjum í landinu. Ekki er líklegt að stuðningsmenn knattspyrnuliða tækju vel í að geta ekki kælt sig niður með bjór meðan á mótinu stendur.

"Ég tel að við séum með sterkt boð í höndunum, einstakt boð," sagði Hassan al-Thawadi, yfirmaður boðsins fyrir hönd Qatar.

"Þetta er sögulegt boð þar sem þetta er það fyrsta sem kemur frá Mið-Austurlöndum, svæði sem er gjöfult, ríkt og fjölbreytt hvað varðar menningu. Ástríða fyrir knattspyrnu er gríðarleg."

"HM í Mið-Austurlöndum myndi gera knattspyrnunni og FIFA kleift að sýna að þessi íþrótt er sérstakur menningarheimur," sagði al-Thawadi.

Það hefur þegar ráðið Ronald de Boer og Pep Guardiola til að auglýsa boðið auk þess sem það réð Mike Lee, Breta sem sá til þess að Englendingar fengju ÓL 2012 og Rio fékk ÓL 2016.

Al-Thawadi segir að verið sé að þróa kælitækni fyrir leikvangana sem gerði þá "fullkomna fyrir leikaðstæður." Auk þess yrði áfengisneysla leyfð á sérstökum aðdáendasvæðum.

Það hefur þegar sett saman 4 billjón dollara plan þar sem níu nýjir leikvangar yrðu byggðir og þrír aðrir gerðir upp. Allir með nýja kælikerfinu. Það yrði þróað til að nota á æfingasvæðum líka.

Þá er 42,9 billjón dollara plan fyrir uppbyggingu í Qatar, svo sem samgöngur og annað slíkt, á teikniborðinu líka.

Ekki eru allir spenntir fyrir hugmyndinni. Bent hefur verið á að ekki er víst að vel yrði tekið í áfengisneyslu og dans á götum úti auk þess sem stjórnmálasamband við Ísrael er ekki gott.

"Komdu sjálfur og sjáðu hvað við höfum upp á að bjóða," sagði Al-Thawadi að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×