Fótbolti

Kristinn dæmir einvígi Drillo og Trapattoni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristinn Jakobsson.
Kristinn Jakobsson. Mynd/Vilhelm
Kristinn Jakobsson dómari mun dæma vináttulandsleik á milli Írlands og Noregs, miðvikudaginn 17. nóvember næstkomandi. Þetta er alþjóðlegur leikdagur en sama dag fer íslenska landsliðið til Tel Aviv og spilar við Ísrael.

Tveir miklir reynsluboltar munu mætast með sín lið í þessum vináttulandsleik. Hinn 71 árs gamli Giovanni Trapattoni þjálfar landslið Íra og hinn 68 ára gamli Egil "Drillo" Olsen þjálfar landslið Norðmanna.

Írar eru í 2. sæti í sínum riðli í undankeppni EM, tveimur stigum á eftir Rússum og með jafnmörg stig en betri markatölu en Armenía og Slóvakía.

Norðmenn hafa unnið þrjá fyrstu leiki sína í H-riðli okkar Íslendinga og eru einir á toppnum í riðlinum.

Kristinn hefur íslenska aðstoðaradómara með í för en það eru þeir þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Frosti Viðar Gunnarsson. Leikurinn fer fram á Aviva vellinum í Dublin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×