Diego Forlan með tvö mörk í 3-0 sigri Úrúgvæ á heimamönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. júní 2010 20:20 Diego Forlan fagnar fyrra marki sínu í kvöld. Mynd/AP
Úrúgvæ vann 3-0 sigur á heimamönnum í Suður-Afríku í fyrsta leiknum í annarri umferð riðlakeppninnar á HM í Suður-Afríku í kvöld en tapið þýðir að gestgjafarnir eru komnir í mjög slæm mál í riðlinum. Diego Forlan skoraði tvö mörk fyrir Úrúgvæ í leiknum, eitt í hvorum hálfleik. Fyrra markið skoraði Forlan með glæsilegu langskoti á 24. mínútu leiksins. Hann fékk þá boltann á miðjum vallarhelmingi Suður-Afríku, lék upp að teig og þrumaði boltann í markið. Síðara mark Forlan kom úr vítaspyrnu á 80. mínútu. Markvörðurinn Itumeleng Khune braut þá á Luis Suarez og hlaut að launum rautt spjald og víti dæmt á sig. Forlan skoraði af öryggi úr spyrnunni og er því orðinn markahæsti maðurinn á HM. Það var síðan Álvaro Pereira sem innsiglaði sigurinn í uppbótartíma þegar hann skoraði eftir sendingu Luis Suarez og undirbúning Forlan sem var langbesti maður vallarsins í kvöld. Suður-Afríkumenn eiga nú ekki mikla möguleika á að komast upp úr riðlinum og það lítur allt út fyrir það að þeir verði fyrstu gestgjafarnir í sögu HM sem komast ekki upp úr riðlakeppninni. Úrúgvæar eru aftur á móti komnir á topp riðilsins með fjögur stig og góða markatölu (3-0) en á morgun mætast Frakkland og Mexíkó en þau hafa bæði eitt stig síðan úr fyrsta leik sínum.
HM 2010 í Suður-Afríku Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Sjá meira