Portúgalar slátruðu heimsmeisturunum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. nóvember 2010 23:03 Hugo Almeida fagnar marki sínu í kvöld. Nordic Photos / AFP
Fjölmargir vináttulandsleikir fóru fram víða um Evrópu í kvöld en í þeim síðasta gerði Portúgal sér lítið fyrir og slátruðu heims- og Evrópumeisturum Spánar, 4-0. Carlos Martins kom Portúgal yfir með marki í lok fyrri hálfleiks en Portúgal hafði verið mun sterkari aðilinn í leiknum. Cristiano Ronaldo virtist hafa komið Portúgal yfir fyrr í leiknum en félagi hans, Nani, ákvað að skalla boltann þegar hann var á leiðinni inn í markið og var dæmdur rangstæður. En þeir létu þetta ekki á sig fá og héldu áfram að sækja grimmt í síðari hálfleik. Helder Postiga kom Portúgal í 2-0 á 49. mínútu og hann bætti svo við þriðja markinu 20 mínútum síðar. Hugo Almeda innsiglaði svo glæsilegan sigur Portúgals með fjórða markinu í lok leikins. Þar með hefndu Portúgalar fyrir ófarirnar á HM í Suður-Afríku í sumar er Spánverjar slógu þá út í 16-liða úrslitum keppninnar. Portúgal er með Íslandi í riðli í undankeppni EM 2012 þar sem liðið byrjaði illa og fékk aðeins eitt stig úr fyrstu tveimur leikjunum. En þá var Carlos Queiroz rekinn og Paulo Bento tók við. Hann fékk sex stig úr fyrstu tveimur leikjum sínum, gegn Danmörku og Íslandi, og er sjálfsagt kominn í guðatölu í heimalandinu eftir sigurinn á heimsmeisturum í kvöld. Úrslit valdra leikja í dag: Argentína - Brasilía 1-0 1-0 Lionel Messi (90.)Danmörk - Tékkland 0-0Svíþjóð - Þýskaland 0-0Holland - Tyrkland 1-0 1-0 Klaas-Jan Huntelaar (52.)Rúmenía - Ítalía 1-1 1-0 C. Marica (34.), 1-1 Fabio Quagliarella (82.).England - Frakkland 1-2 0-1 Karim Benzema (16.), 0-2 Mathieu Valbuena (55.), 1-2 Peter Crouch (86.).Írland - Noregur 1-2 1-0 Shane Long, víti (5.), 1-1 Morten Gamst Pedersen (34.), 1-2 Erik Huseklepp (86.).
Fótbolti Mest lesið Diogo Jota lést í bílslysi Fótbolti Arnar Pétursson dæmdur úr leik á Íslandsmótinu og er mjög ósáttur Sport Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Enski boltinn Glódís mætti ekki á æfingu Fótbolti Fótboltaheimurinn syrgir fallna félaga Fótbolti Ásthildur Helga: Þetta var bara lélegt Fótbolti Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Handbolti EM í dag: Þungt högg, óvæntur fáni og indverskur matur Fótbolti „Óbætanlegur missir fyrir portúgalska knattspyrnu“ Fótbolti Borgaði bara ungmennaliðinu laun og nú má allt aðalliðið fara frítt Enski boltinn Fleiri fréttir Fékk rautt spjald fyrir ári síðan og má ekki spila í kvöld Cecilía og Sveindís mynda gott grínpar: „Hún er léttklikkuð“ Skriðdrekar á ferð við æfingasvæði Íslands Forsetinn hressti stelpurnar við: „Hitti algjörlega naglann á höfuðið“ EM í dag: Þungt högg, óvæntur fáni og indverskur matur Þorsteinn um fráfall Jota: „Sorglegar fréttir“ Fótboltaheimurinn syrgir fallna félaga Mínútu þögn fyrir leik Portúgals í kvöld Varð fullorðinn úti Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Glódís mætti ekki á æfingu „Óbætanlegur missir fyrir portúgalska knattspyrnu“ Borgaði bara ungmennaliðinu laun og nú má allt aðalliðið fara frítt Diogo Jota lést í bílslysi Hita upp fyrir HM með úrslitaleik um Gullbikarinn Myndasyrpa: Stelpurnar vel studdar í svekkjandi tapi „Ótrúlega gott fyrir hjartað að sjá þau“ Ásthildur Helga: Þetta var bara lélegt Skýrsla Arons: Afleit byrjun sem verður nú að svara fyrir Sveindís og félagar sendar í frí á meðan HM karla fer fram Systurnar hugsi vegna virkni stelpnanna á TikTok Dramatík í endurkomusigri Norðmanna í hinum leik íslenska riðilsins Jóhann Berg kominn með nýtt lið á Arabíuskaganum Sveindís: Hefði kannski átt að gera meira til að koma mér inn í leikinn „Heilt yfir var ég bara sáttur“ „Ég var bara með niðurgang“ Ingibjörg: Gríðarlega svekkjandi „Mér fannst við alveg halda þeim í skefjum“ Einkunnir íslensku stelpnanna: Cecilía best en liðið betra manni færri Twitter yfir leiknum gegn Finnlandi: Vonbrigði í Thun Sjá meira